Enginn kylfingur á meðal tíu efstu í kjörinu á íþróttamanni ársins
Íslenskir kylfingar náðu ekki að komast inn á topp 10 listann að þessu sinni hjá Samtökum íþróttafréttamanna í kjörinu á íþróttamanni ársins. Alls eru fimm konur og fimm karlar á topp 10 listanum að þessu sinni og hafa konurnar aldrei verið fleiri frá því að kjörinu var lýst í fyrsta sinn árið 1956. Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður var kjörinn íþróttamaður ársins 2013 en greint verður frá úrslitum úr kjörinu 2014 þann 3. janúar.
Golffréttamennirnir Sigurður Elvar Þórólfsson og Páll Ketilsson eru í Samtökum íþróttafréttamanna og tóku þátt í kjörinu. Tæplega 30 íþróttafréttamenn eru í SÍ og hafa kosningarétt.
Kylfingar hafa verið á topp 10 listanum í 25 skipti og var Magnús Guðmundsson úr GA sá fyrsti árið 1963. Sigurður Pétursson úr GR hefur náð bestum árangri í kjörinu en hann varð þriðji árið 1983. Úlfar Jónsson deildi 2.-10. sætinu árið 1987 en þá gátu félagsmenn í Samtökum íþróttafréttamanna ekki komið sér saman um röðina í kjörinu eftir að Arnór Guðjohnsen knattspyrnumaður var kjörinn iþróttamaður ársins.
Tvívegis hafa tveir kylfingar verið á meðal tíu efstu; í fyrra skiptið árið 1993 þegar Úlfar Jónsson og Þorsteinn Hallgrímsson voru á listanum. Ólöf María Jónsdóttir og Birgir Leifur Hafþórsson voru á meðal tíu efstu árið 2004 en Ólöf María náði fjórða sætinu en það er besti árangur hjá íslenskum kvenkylfing.
Eftirtaldir kylfingar hafa náð inn á topp 10 listann í kjörinu á íþróttamanni ársins:
1963:
10. sæti: Magnús Guðmundsson, GA
1965:
7. sæti: Magnús Guðmundsson, ÍBA
1977:
9. sæti: Björgvin Þorsteinsson, GA
1979:
8. sæti: Hannes Eyvindsson, GR
1981:
6. sæti: Ragnar Ólafsson, GR
1984:
9. sæti: Ragnar Ólafsson, GR
1985:
3. sæti: Sigurður Pétursson, GR
1986:
9. sæti: Úlfar Jónsson, GK
1987:
2-10 sæti: Úlfar Jónsson, GK
1988:
5. sæti: Úlfar Jónsson, GK
1990:
4. sæti: Úlfar Jónsson, GK
1992:
5. sæti: Úlfar Jónsson, GK
1993:
5. sæti: Úlfar Jónsson, GK
8. sæti: Þorsteinn Hallgrímsson, GV
1995:
5. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson, Leynir
1997:
6. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson, Leynir
1998:
9. sæti: Ragnhildur Sigurðardóttir, GR
2000:
5. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson , GL
2001:
6. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson, GL
2002:
10. sæti: Ólöf María Jónsdóttir, GK
2003:
9. sæti: Ragnhildur Sigurðardóttir, GR
2004:
5. sæti: Ólöf María Jónsdóttir, GK
6. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson, GKG
2005:
8. sæti: Ólöf María Jónsdóttir, GK
2006:
4. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG
2007:
5. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson, GKG
2011:
10. sæti: Ólafur Björn Loftsson, NK
Frá því að kjörið á íþróttamanni ársins fór fram í fyrsta sinn árið 1956 hafa aldrei áður hafa jafnmargar konur verið á topp 10 listanum. Sex sinnum hafa fjórar konur verið á topp 10 listanum. Í fyrra voru tvær konur á meðal tíu efstu.
Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnumaður, var kjörinn íþróttamaður ársins 2013. Þrjú lið koma til greina í kjörinu á liði ársins og þrír þjálfarar í kjörinu á þjálfari ársins. Þetta er í þriðja sinn sem lið ársins og þjálfari ársins eru kosnir.
Samtök íþróttafréttamanna standa að þessu kjöri í 59. skipti en alls hafa 33 íþróttamenn fengið þessa viðurkenningu frá upphafi. Íþróttamenn úr frjálsíþróttum hafa oftast verið kjörnir íþróttamenn ársins eða í 21 skipti, þar á eftir kemur handknattleikur (12), knattspyrna (9), sund (8), kraftlyftingar (3), judó (1), þolfimi (1), hestaíþróttir (1).
Þeir tíu sem urðu í efstu sætunum eru eftirtaldir, í stafrófsröð:
Aron Pálmarsson, handknattleikur
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund
Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleikur
Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna
Hafdís Sigurðardóttir, frjálsíþróttir
Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund
Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleikur
Jón Margeir Sverrisson, sund fatlaðra
Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna
Sif Pálsdóttir, fimleikar
Lið ársins, efstu þrjú sæti í stafrófsröð:
Knattspyrnulandslið karla
Körfuknattleikslandslið karla
Meistaraflokkur karla Stjörnunnar í knattspyrnu
Þjálfari ársins, efstu þrjú sæti í stafrófsröð:
Alfreð Gíslason
Heimir Hallgrímsson
Rúnar Páll Sigmundsson
Vilhjálmur hefur oftast verið kjörinn iþróttamaður ársins:
Vilhjálmur Einarsson hefur oftast fengið þessa viðurkenningu eða alls fimm sinnum, þar á eftir koma Ólafur Stefánsson (4), Einar Vilhjálmsson (3), Hreinn Halldórsson (3), Örn Arnarson (3), Valbjörn Þorláksson (2), Jón Arnar Magnússon (2), Ásgeir Sigurvinsson (2), Skúli Óskarsson (2), Eiður Smári Guðjohnsen (2).
Fjórar konur hafa verið efstar í þessu kjöri, Sigríður Sigurðardóttir handknattleikskona var sú fyrsta árið 1964, Ragnheiður Runólfsdóttir sundkona árið 1991, Vala Flosadóttir frjálsíþróttakona var sú þriðja í röðinni árið 2000 og Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona árið 2007.
Aðrir hafa fengið þessa viðurkenningu einu sinni.
1956 Vilhjálmur Einarsson (1), Frjálsíþróttir (1)
1957 Vilhjálmur Einarsson (2), Frjálsíþróttir (2)
1958 Vilhjálmur Einarsson (3), Frjálsíþróttir (3)
1959 Valbjörn Þorláksson (1), Frjálsíþróttir (4)
1960 Vilhjálmur Einarsson (4), Frjálsíþróttir (5)
1961 Vilhjálmur Einarsson (5), Frjálsíþróttir (6)
1962 Guðmundur Gíslason (1), Sund (1)
1963 Jón Þ. Ólafsson (1), Frjálsíþróttir (7)
1964 Sigríður Sigurðardóttir (1), Handbolti (1)
1965 Valbjörn Þorláksson (2), Frjálsíþróttir (8)
1966 Kolbeinn Pálsson (1), Körfubolti (1)
1967 Guðmundur Hermanns. (1), Frjálsíþróttir (9)
1968 Geir Hallsteinsson (1), Handbolti (2)
1969 Guðmundur Gíslason (1), Sund (2)
1970 Erlendur Valdimarsson (1), Frjálsíþróttir (10)
1971 Hjalti Einarsson (1), Handbolti (3)
1972 Guðjón Guðmundsson(1), Sund (3)
1973 Guðni Kjartansson (1), Knattspyrna (1)
1974 Ásgeir Sigurvinsson (1), Knattspyrna (2)
1975 Jóhannes Eðvaldsson (1, Knattspyrna (3)
1976 Hreinn Halldórsson (1), Frjálsíþróttir (11)
1977 Hreinn Halldórsson (2), Frjálsíþróttir (12)
1978 Skúli Óskarsson (1), Kraftlyftingar (1)
1979 Hreinn Halldórsson (3), Frjálsíþróttir (13)
1980 Skúli Óskarsson (2), Kraftlyftingar (2)
1981 Jón Páll Sigmarsson (1), Kraftlyftingar (3)
1982 Óskar Jakobsson (1), Frjálsíþróttir (14)
1983 Einar Vilhjálmsson (1), Frjálsíþróttir (15)
1984 Ásgeir Sigurvinsson (2), Knattspyrna (4)
1985 Einar Vilhjálmsson (2), Frjálsíþróttir (16)
1986 Eðvarð Þór Eðvarðsson (1), Sund (4)
1987 Arnór Guðjohnsen (1), Knattspyrna (5)
1988 Einar Vilhjálmsson (3), Frjálsíþróttir (17)
1989 Alfreð Gíslason (1), Handbolti (4)
1990 Bjarni Friðriksson (1), Júdó (1)
1991 Ragnheiður Runólfsd. (1), Sund (5)
1992 Sigurður Einarsson (1), Frjálsíþróttir (18)
1993 Sigurbjörn Bárðarson (1), Hestaíþróttir (1)
1994 Magnús Scheving (1), Þolfimi (1)
1995 Jón Arnar Magnússon (1), Frjálsíþróttir (19)
1996 Jón Arnar Magnússon (2), Frjálsíþróttir (20)
1997 Geir Sveinsson (1), Handbolti (5)
1998 Örn Arnarson (1), Sund (6)
1999 Örn Arnarson (2), Sund (7)
2000 Vala Flosadóttir (1), Frjálsíþróttir (21)
2001 Örn Arnarson (3), Sund (8)
2002 Ólafur Stefánsson (1), Handbolti (6)
2003 Ólafur Stefánsson (2), Handbolti (7)
2004 Eiður Smári Guðjohns. (1), Knattspyrna (6)
2005 Eiður Smári Guðjohns. (2), Knattspyrna (7)
2006 Guðjón Valur Sigurðs. (1), Handbolti (8)
2007 Margrét Lára Viðarsd. (1), Knattspyrna (8)
2008 Ólafur Stefánsson (3), Handbolti (9)
2009 Ólafur Stefánsson (4), Handbolti (10)
2010 Alexander Petersson (1), Handbolti (11)
2011 Heiðar Helguson (1), Knattspyrna (9)
2012 Aron Pálmarsson (1), Handbolti (12)
2013 Gylfi Þór Sigurðsson (1), Knattspyrna (9)


