Er Gunnlaugur Árni efnilegasti kylfingur Íslands fyrr og síðar?
Var hársbreidd frá því að komast inn á US open á dögunum
Gunnlaugur Árni Sveinsson er kylfingur sem flestir sem fylgjast með golfi á Íslandi, vita hver er. Hann er ekki nema tæplega tvítugur en er nú þegar búinn að blanda sér í hóp bestu kylfinga Íslands. Hann lenti í fimmta sæti á síðasta Íslandsmóti en eftir sumarið settist hann á skólabekk í Bandaríkjunum, n.t. í Baton rouge í Louisana-fylki en þar er hinn þekkti LSU (Louisana State University) háskóli. Góð frammistaða hans í vetur tryggði honum keppnisrétt á úrtökumóti fyrir US open og var hann ekki langt frá því að enda á þessu einu fjögurra risamóta golfsins en hann var í öðru sæti að loknum fyrri keppnisdegi.
Gunnlaugur Árni mun ekki keppa neitt á Íslandi í sumar þar sem hann verður upptekinn við spilamennsku í sterkum áhugamannamótum í Evrópu og Bandaríkjunum.
Gunnlaugur Árni er vel upp alinn ungur maður, hann kemst ekki upp með neitt annað en sinna náminu 100% en foreldrar hans eru Sveinn Kristinn Ögmundsson og Halla Árnadóttir. Gunnlaugur á kannski ekki langt að sækja íþróttahæfileikana en afi hans, Ögmundur Kristinsson, var markmaður og lék lengst af með Víkingum og spilaði líka landsleiki fyrir Íslands hönd.
Gunnlaugur Árni var nýlega lentur á Íslandi þegar Kylfingur náði tali af honum. Drengurinn er greinilega með báða fætur á jörðinni og var hógværðin uppmáluð við fyrstu spurningu blaðamanns, sem er fyrirsögn þessa viðtals.
„Það verða aðrir að leggja mat á það en það er mikið stolt ef svo er. Eina sem ég get stjórnað er að reyna að spila sem best golf og auðvitað eru fullt af bónusum að heyra þetta. En eins og ég segi, það hafa margir góðir kylfingar komið frá íslandi og ég er stoltur að vera einn af þeim.
Leiðin að US open er önnur en ég fékk keppnisrétt á úrtökumótinu vegna góðrar frammistöðu í háskólagolfinu en 50 bestu áhugakylfingar í heiminum fengu keppnisrétt á mótinu, sem var tveir dagar. Ég var í öðru sæti eftir dag eitt en náði mér ekki eins vel á strik á öðrum degi og komst því ekki áfram og auðvitað var það svekkjandi en ég var fljótur að jafna mig á því. Flestir ef ekki allir sem ég var að keppa við voru nokkrum árum eldri, búnir að vera í sínum háskólum í allt að fjögur ár svo ég get ekki kvartað yfir mínu gengi. Ég er í raun kominn miklu lengra á þessum tímapunkti en áætlanir mínar og markmið sögðu til um, ég náði að vinna eitt mót á háskólamótaröðinni og endaði í topp sex í sex af ellefu öðrum mótum. Mín markmið voru að vera á þessum stað á öðru, jafnvel þriðja ári, svo eins og ég segi, þá er ég mjög sáttur með hvernig þetta hefur farið af stað.“

Stefnan snemma tekin
Gunnlaugur var fimmtán ára þegar hann vissi hvert hann vildi stefna.
„Andrés Jón Davíðsson sem þjálfaði mig í GKG, kallaði mig og pabba á fund þegar ég var fimmtán ára og þar og þá voru línurnar lagðar má segja. Fljótlega var ég líka kominn í samband við Gauta Grétarsson, sjúkraþjálfara og svo hefur Sigmundur Einar Másson hjálpað mér mikið varðandi val á háskóla og allt varðandi tölfræði en ég er sannfærður um að ef kylfingur lærir að nýta sér tölfræði, getur hann bætt sig mjög mikið í golfi. Þá á ekki bara við um kylfing eins og mig sem set stefnuna á atvinnumennsku, þetta gildir jafn mikið ef ekki meira fyrir áhugakylfinginn. Það hjálpaði mér líka mjög mikið að þessir þrír aðilar unnu mjög vel saman og voru með foreldra mína með í ráðum líka svo ég vil trúa að teymið í kringum mig hafi verið eins gott og það gat orðið, alla vega hefur mér gengið vonum framar hingað til. Foreldrar mínir hafa líka allt mitt líf passað vel upp á að ég sinnti náminu líka, ég kláraði stúdentinn á þremur árum og þau hafa passað upp á að ég sinni náminu í LSU vel en ég er að læra viðskiptafræði og ætla mér að klára það nám áður en hugleitt verður að fara í atvinnugolf. Það þýðir ekki að mínu mati að leggja allt í sölurnar til að ná að verða atvinnukylfingur, margt getur komið upp á og þá er gott að geta búið að góðu háskólanámi. Ég lít á háskólagolfið sem ígildi atvinnumennsku, skólagjöldin hlypu á milljónum ef ég þyrfti að borga og ég æfi eins og atvinnumaður.
Ég vil líka minnast á okkar atvinnukylfinga, þeir hafa gefið mér góð ráð og t.d. var ómetanlegt að fá að vera kylfusveinn fyrir Bjarka Péturs þegar hann var að keppa á evrópsku áskorendamótaröðinni, það var gott að geta séð hvernig hlutirnir virka í atvinnugolfinu,“ segir Gulli.
Keppir erlendis í sumar
Gunnlaugur er nýkominn til landsins en hann verður á faraldsfæti í sumar og mun því ekki keppa neitt á Íslandi. Eins og fram kom í innganginum, lenti hann í fimmta sæti á síðasta Íslandsmóti í höggleik og þó svo að hann hafi metnað fyrir að hampa þeim eftirsótta titli einhvern tíma, getur hann ekki látið á það reyna í sumar sökum anna erlendis.
„Ég er að fara á opna breska áhugamannamótið á föstudaginn og verð meira og minna erlendis í tvær vikur í senn en svo heima í viku en er svo alfarinn út til Louisana í ágúst. Ég gæti verið að taka þátt í atvinnumannamótum sem áhugamaður en það er hægara sagt en gert að fá boð í slík mót, þjóðirnar sem eru að halda mótin bjóða sínum kylfingum eðlilega en auðvitað er það þannig að ef ég stend mig á öðrum mótum, aukast líkurnar á að ég fái boð. Ég er hins vegar ekkert að spá í atvinnugolfi á þessum tímapunkti, ég ætla að klára háskólann fyrst.
Ég næ ekki að spila í neinum mótum hér á landi í sumar, ég og teymið mitt tókum þá ákvörðun og ég er mjög sáttur við það. Auðvitað hefði verið gaman að taka þátt í Íslandsmótinu en ég verð erlendis á þeim tímapunkti en ég mun pottþétt spila á því æðislega móti aftur og ætla mér auðvitað að bæta mínu nafni á þann bikar. Ég mun pottþétt eitthvað spila á Íslandi en það verður bara til gamans með vinum og fjölskyldu. Ég hlakka t.d. til að mæta með pabba í einvígi í Grindavík sem búið er að bjóða okkur í þegar aðstæður bjóða upp á það, þ.e. þegar ég er á landinu og sól og blíða verður í Grindavík, það verður eitthvað.“

Bæting og aldrei farið holu í höggi í móti
Gunnlaugur bætti sig talsvert á þessu fyrsta ári í háskólanáminu en hvar telur hann sig geta bætt sig til að komast upp á næsta getustig?
„Góð spurning, ég get ekki bent á einhvern sérstakan þátt golfsins sem ég hef bætt mig meira í heldur en annan en mesta bætingin hjá mér liggur held ég í hausnum, það er að hugsa leikinn. Vellirnir í háskólagolfinu eru settir upp þannig að þeir eru mjög erfiðir, maður þarf því að vera mjög agaður og þolinmóður. Þetta snýst mest um leikskipulag og fara ekki út úr því þótt eitthvað breytist á hringnum. Alveg eins og með minn háskólaferil til þessa, við ætlum að halda sama plani þó svo að ég sé eitthvað á undan áætlun. Sama gildir á golfhring, maður er auðvitað búinn að stúdera viðkomandi völl í minnstu smáatriði og maður þarf að vita hvenær á að sækja og hvenær að leika varnargolf, þ.e. að vera ánægður með parið á móti því á sumum brautum að ætla sér að sækja fugl. Ef þú nærð ekki markmiðinu á einni holu, þýðir lítið að ætla sér stærri hluti á næstu holu. Ef ég get eitthvað ráðlagt hinum almenna áhugakylfingi, leiktu samkvæmt þinni getu og þar er gott að styðjast við forgjöfina. Sá sem er með 18 í forgjöf á að geta verið sáttur við að fá skolla á þessar átján holur, þannig er hann að spila á sinni forgjöf. Ég er nokkuð viss um Simmi getur sýnt fram á að ef kylfingur nálgast sitt golf á þennan máta, þá mun hann oftar en ekki enda á betra skori. Fyrir hinn venjulega kylfing er hugsanlega fráleitt markmið að ætla sér að ná fugli því áhættan sem er tekin, skilar bara einu höggi í betra skora, en rassskellurinn sem kemur vegna þess að áhætta var tekin, skilar sér kannski í þremur til fimm töpuðum höggum. Er þessi virði að eltast við fuglinn ef horft er blákalt á svona staðreyndir, ég held ekki.
Ef ég verð að benda á einhvern ákveðinn þátt golfsins sem ég þurfi að bæta mig í, þá er það tvímælalaust púttin. Ég hef bætt mig talsvert í þeim í vetur og í þeim eins og öllum þáttum leiksins, er rúm fyrir meiri bætingu. Það er kannski stærsta fegurðin í golfinu, það er endalaust hægt að bæta sig en fjandakornið hafi það, á einhverjum tímapunkti hljóta þeir spretthörðustu í heiminum að lenda á vegg varðandi að bæta heimsmetið í 100m hlaupi, svo dæmi sé tekið. Í öllum öðrum þáttum golfs en í pútti, er ég á pari við þá bestu í háskólagolfinu svo ég þarf einfaldlega að halda áfram að bæta mig í öllum þáttum leiksins en mest í púttunum.
Ég hef ekki ennþá náð draumahögginu í móti og ég skrái mig ekki í Einherjaklúbbinn fyrr en ég geri það. Þó hef ég farið holu i höggi í æfingahring með vinum. Ég er nokkuð viss um að sumir kylfingar á PGA-túrnum hafa ekki einu sinni náð draumahögginu í æfingahring, það þarf auðvitað ákveðið magn af heppni til að ná þessu en auðvitað eru betri kylfingar líklegri til að ná þessu en meðal-Jón en þetta er einfaldlega önnur fegurð við þennan yndislega leik, golfguðirnir eru mishliðhollir kylfingum. Eins og ég segi, ég hef náð þessu og gæti verið fullgildur meðlimur Einherjaklúbbsins en ég er nokkuð rólegur yfir því, skrái mig hugsanlega þegar ég næ þessu í móti og talan EINN blasir við á skorkortinu,“ segir Gulli.
PGA-túrinn stóra markmiðið
Eins og Europe challenge tour er næsta stig fyrir neðan stóru Evrópumótaröðina, DP tour, er slíkt líka í Bandaríkjunum.
„Það eru nokkrar aðrar mótaraðir fyrir neðan PGA, Kornferry og PGA Americans þar sem annar hlutinn er spilaður í S-Ameríku og seinni hlutinn í Kanada. Ég held að ég geti sagt að PGA-túrinn sé sterkasta mótaröðin, svo kemur DP-Evróputúrinn, Kornferry, challenge í Evrópu og svo PGA Americans. Auðvitað er of snemmt á þessum tímapunkti að velta fyrir sér á hvaða mótaröð ég vil spila en minn metnaður er einfaldlega þannig að ég vil spila á meðal þeirra bestu og þ.a.l. hlýtur markmiðið að vera að komast á PGA-túrinn. Það hafa margir kylfingar úr mínum skóla spilað á PGA og því skyldi ég ekki eiga möguleika á því líka ef ég held rétt á spöðunum og verð heppinn hvað varðar meiðsli og annað sem getur sett strik í reikninginn? Ég er hins vegar bara nítján ára ennþá, verð ekki tvítugur fyrr en í desember og er bara búinn með eitt af fjórum árum í háskólagolfinu. Ég held að foreldrar mínir myndu ekki einu sinni leyfa mér að hætta námi til að eltast við atvinnumannadrauminn svo mitt leikskipulag gengur út á að bæta mig áfram sem kylfingur samhliða að ná mér í menntun, svo tökum við stöðuna,“ sagði Gunnlaugur Árni að lokum.
