Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Evrópumótaröð karla: Jamieson efstur | Garcia skammt undan
Scott Jamieson.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
laugardaginn 14. september 2019 kl. 06:13

Evrópumótaröð karla: Jamieson efstur | Garcia skammt undan

Það er Skotinn Scott Jamieson sem er í forystu eftir tvo hringi á KLM Open mótinu sem fram fer á Evrópumótaröð karla. Hann er með tveggja högga forystu á Sergio Garcia og þrjá aðra.

Jamieson átti besta hring gærdagsins er hann kom í hús á 65 höggu, eða sjö höggum undir pari. Á hringnum tapaði hann engu höggi, fékk sjö fugla og restina pör. Hann er því samtals 11 höggum undir pari.

Örninn 2025
Örninn 2025

Jafnir í öðru sæti ásamt Garcia á níu höggum undir pari eru Englendingarnir Matthew Southgate, Callum Shinkwin og James Morrison.

Patrick Reed, 17 maður heimslistans, er jafn í 47. sæti á samtals þremur höggum undir pari.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.