Evrópumótaröð karla: Jamieson með eins höggs forystu fyrir lokahringinn
Skotinn Scott Jamieson er í forystu fyrir lokahringinn á Alfred Dunhill Championship mótinu sem fer fram í Suður-Afríku á Evrópumótaröð karla.
Jamieson, sem lék þriðja hringinn á 4 höggum undir pari, er samtals á 11 höggum undir pari í mótinu.
David Lipsky, sem var í forystu eftir tvo hringi, er í öðru sæti fyrir lokahringinn á 10 höggum undir pari.
Heimamennirnir Zander Lombard og Brandon Stone eru svo jafnir í þriðja sæti á 8 höggum undir pari.
Scott Jamieson will take a one-shot lead going into tomorrow's final round.#DunhillChamps pic.twitter.com/WLg9LYZEAz
— The European Tour (@EuropeanTour) December 15, 2018
Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.