Fannar Ingi með eitt högg í forskot
Fannar Ingi Steingrímsson, kylfingur úr GHG, lék frábært golf á öðrum keppnisdegi af alls þremur á Egils Gullmótinu í Eimskipsmótaröðinni í dag. Leikið er á Hólmsvelli í Leirunni og er þetta þriðja mót tímabilsins á mótaröðinni.
Fannar Ingi lék á fimm höggum undir pari, 67 höggum, og er samtals á fjórum höggum undir pari fyrir lokahringinn sem fer fram á sunnudaginn.
Ragnar Már Garðarsson (GKG), lék einnig vel á öðrum hringnum og kom inn á fjórum höggum undir pari. Hann er einu höggi á eftir Fannari líkt og þeir Ingvar Andri Magnússon (GR) og Hlynur Bergsson (GKG).
1. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG (73-67) 140 (-4)
2.-4. Ragnar Már Garðarsson, GKG (73-68) 141 (-3)
2.-4. Ingvar Andri Magnússon, GR (71-70) 141 (-3)
2.-4. Hlynur Bergsson, GKG (69-72) 141 (-3)
Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.