FARA Open í Borgarnesi mest sótta mótið
Þrjú af ellefu mest sóttu golfmótum sumarsins voru haldin á Hamarsvelli í Borgarnesi. FARA Open dró flesta kylfinga að sér en 308 manns mættu til leiks og léku frá morgni og langt fram á kvöld í ágústmánuði.
Þetta kemur fram í ársskýrslu Golfsambands Íslands en þar er birtur listi yfir ellefu mót þar sem fleiri en 200 kylfingar tóku þátt í. Athygli vekur að aðeins eitt mótanna var haldið á höfuðborgarsvæðinu en það var Pallaopen á Hlíðavelli í Mosfellsbæ. Hin voru öll á landsbyggðinni.



