Fimm jafnir og efstir í Suður-Afríku
Það voru margir að leika vel þegar fyrsti hringurinn á Evrópumótaröðinni á nýju ári var leikinn í Suður-Afríku í dag. Africa Open mótið hófst í dag og eftir fyrsta hringinn erum fimm kylfingar jafnir og efstir. Tveir Norðurlandabúar, þeir Mark Haastrup og Patrik Sjöland, eru þeirra á meðal og léku á sjö höggum undir pari eða á 66 höggum á East London golfvellinum.
Hinir þrír eru heimamenn, eða þeir Trevor Fisher, Titch Moore og Richard Sterne. Fjórir kylfingar frá Suður-Afríku koma svo einu höggi þar á eftir en alls eru sjö Suður-Afríkubúar í efstu níu sætunum.
Af stærri nöfnum má nefna að Darren Clarke lék á 69 höggum í dag eða fjórum höggum undir pari. Englendingurinn Oliver Fisher lék á þremur höggum undir pari og því eru þeir báðir nokkuð ofarlega eftir fyrsta hringinn.
Kylfingar eins og Thomas Björn, Danny Lee og Nick Dougherty náðu sér ekki á strik í dag og eiga á hættu að komast ekki í gegnum niðurskurðinn.
Staðan í mótinu
Mynd/golfsupport.nl:Danski kylfingurinn Mark Haastrup er ásamt fjórum öðrum efstur.


