Fleiri ferðir hjá golfdeild Gaman Ferða
Gaman Ferðir hafa aukið við golferðirnar hjá sér og eru byrjaðir að selja golfferðir til Alicante á Spáni, London og Dublin en nýlega var opnuð formlega golfdeild hjá ferðaskrifstofunni.
Fararstjóri á Spáni er PGA golfkennarinn Jón Karlsson. Farið er m.a. á Villaitana sem er nálægt Benidorm. Jón segsir þetta vera frábært golfsvæði með tveimur 18 holum völlum hönnuðum af Jack Nicklaus.
Boðið er upp á skemmtilegar ferðir á spennandi staði. Nýjung hjá Gaman Ferðum er t.d. æfingaferð fyrir kylfinga á öllum aldri með mismunandi forgjöf sem vilja bæta sig. „Við köllum þetta landsliðsvikuna en þar er hinum venjulega kylfingi boðið upp á að æfa eins og landsliðskylfingur. Spennandi og áhugaverð vika sem er fullkomin fyrir þá sem vilja koma vel undirbúnir til leiks fyrir næsta keppnistímabil. Einnig verður boðið upp á sérstakan golfskóla fyrir þá sem það vilja í nokkrum ferðum næsta vor.“ segir Nonni sem gefur allar nánari upplýsingar um golfferðir Gaman Ferða en það er hægt að senda honum póst á [email protected] eða í síma 899 0769.
Karen Sævarsdóttir LPGA golfkennari og margfaldur Íslandsmeistari er með ferð frá 23.04 til Villiatana. Skemmtilega ferð með miklu golfi og möguleika á dekri í mat og heilsurækt. Þá er hægt að komast í golfskóla og fá aðra kennslu.
„Golfveislan byrjar með Páskaferð 19. mars. til Villiatana á Spáni. WOW flýgur 11 mánuði á ári til Alicante þannig að við getum búið til góðar og skemmtilegar ferðir fyrir þig og þinn hóp hvenær sem er,“ sagði Jón Karlsson.
Sjá nánar á heimasíðu Gaman Ferða.
Jón og Bæring á góðri stundu í golfi.