Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Garðavöllur verður stækkaður
Meðfylgjandi mynd var tekin við undirskrift samnings. Þar mættu fulltrúar Golfklúbbsins Leynis, ásamt bæjarstjóra, bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar og Framsóknar og frjálsra.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 28. apríl 2026 kl. 15:37

Garðavöllur verður stækkaður

Forsvarsmenn Golfklúbbsins Leynis og bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar ásamt bæjarstjóra undirrituðu í nýlega viljayfirlýsingu um stækkun Garðavallar. Verkefnið er mjög viðamikið og metnaðarfullt sem einkennir Íþróttabæinn Akranes, segir í frétt á heimasíðu Leynis.

Þar segir einnig að markmið samningsaðila sé að tryggja að Garðavöllur þróist áfram til framtíðar sem öflugt íþrótta- og útivistarsvæði þar sem tekið verður mið af þörfum golfíþróttarinnar, almennrar útivistar, náttúru og samfélagslegs ávinnings.

Næstu skref samningsaðila er að mynda starfshóp með fulltrúum beggja aðila sem fá það verkefni að vinna málið áfram innan stjórnsýslunnar.

Stjórn GL í samstarfi við Vallarnefnd klúbbsins munu skipa nefnd sem mun taka upp þær hugmyndir sem lagðar voru fram til Akraneskaupstaðar fyrr á kjörtímabilinu. Að mörgu er að huga þar sem verkefnið er langhlaup og uppbygging ræðst mikið af fjármagni og mannafla. Samtal við almenna félagsmenn um stækkunina er stjórn Leynis dýrmætt og mun það vera virkt á verkefnatímanum m.a. í formi félagsfunda.

Meðfylgjandi mynd var tekin við undirskriftina fyrr í dag. Þar mættu fulltrúar Golfklúbbsins Leynis, ásamt bæjarstjóra, bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar og Framsóknar og frjálsra.

Forsvarsmenn Golfklúbbsins Leynis og bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar ásamt bæjarstjóra undirrituðu í nýlega viljayfirlýsingu um stækkun Garðavallar. Verkefnið er mjög viðamikið og metnaðarfullt sem einkennir Íþróttabæinn Akranes, segir í frétt á heimasíðu Leynis.

Þar segir einnig að markmið samningsaðila sé að tryggja að Garðavöllur þróist áfram til framtíðar sem öflugt íþrótta- og útivistarsvæði þar sem tekið verður mið af þörfum golfíþróttarinnar, almennrar útivistar, náttúru og samfélagslegs ávinnings. Næstu skref samningsaðila er að mynda starfshóp með fulltrúum beggja aðila sem fá það verkefni að vinna málið áfram innan stjórnsýslunnar.

Stjórn GL í samstarfi við Vallarnefnd klúbbsins munu skipa nefnd sem mun taka upp þær hugmyndir sem lagðar voru fram til Akraneskaupstaðar fyrr á kjörtímabilinu. Að mörgu er að huga þar sem verkefnið er langhlaup og uppbygging ræðst mikið af fjármagni og mannafla. Samtal við almenna félagsmenn um stækkunina er stjórn Leynis dýrmætt og mun það vera virkt á verkefnatímanum m.a. í formi félagsfunda.

Golfklúbburinn Leynir var stofnaður 1965 og fagnaði 60 ára afmæli í fyrra. Garðavöllur byggðist upp í áföngum eftir stofnun en stórum áfanga var náð 1969 þegar brautirnar urðu níu talsins. Þrjátíu og einu ári síðar eða árið 2000 var 18 holu völlur opnaður og síðan hafa Íslandsmót í höggleik verið haldin á vellinum auk stærri móta á vegum GSÍ.

Sjá meira í umfjöllun í Golf á Íslandi árið 2000.