Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Eva fékk albatross
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 28. apríl 2026 kl. 16:03

Eva fékk albatross

Landsliðskonan Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar ékk albatross á 16. holunni á Rot vellinum í St Leon Rot þar sem hún var við leik nýlega með félögum sínum úr klúbbnum. Brautin er 447 metrar á bláum teigum og Eva sló frá 207 metra færi með 4 hybrid eftir frábært upphfshögg - og boltinn söng í holunni. Hún lék hringinn á 73 höggum eða einu yfir pari og er þetta fyrsti hringur í tveggja daga móti Meistaraflokks GM.

Eva er ein af efnilegustu kylfingum landsins en hún hefur orðið Íslandsmeistari unglinga í holukeppni síðustu tvö ár og þá hefur hún látið að sér kveða í toppbaráttunni í Íslandsmótinu í höggleik síðustu tvö árin.

Á síðustu árum hafa tveir aðrir kylfingar úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar fengið albatross, þeir Dagur Ebenezersson og Jökull Þorri Sverrisson en fréttir um það má sjá á kylfingur.is