Fréttir

Fór „all in“ í golfið fyrir stuttu til að vera ekki lélegastur í minningarmóti
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
sunnudaginn 8. október 2023 kl. 08:48

Fór „all in“ í golfið fyrir stuttu til að vera ekki lélegastur í minningarmóti

Kylfingur dagsins heitir Hreiðar Bragi Valgeirsson og býr á Hornafirði en hann notar fyrsta nafnið nánast ekki neitt og kallar sig alltaf Braga. Bragi er stýrimaður á Vigur Sf 80 sem er frá Hornafirði, er nýlega byrjaður í golfi, vill helst bæta högg með driver og finnst Silfurnesvöllurinn á Hornafirði vera einn af þeim fallegri.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?

Ég byrjað all in 2020. En ég hafði í nokkur ár  tekið þátt í minningarmóti Gunnars Hersis á hverju sumri og var orðinn þreyttur á því að vera alltaf lélegastur í því móti og ákvað bara að hella mér í golfið.

Helstu afrek í golfinu?

Ætli það sé ekki að sigra minningarmótið sem ég gerði árið 2021.

Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?

Ég er svo svalur að ég lendi aldrei í neinu neyðarlegu.... 

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?

Það er án ef stórvinur minn hann Guðjón Björnsson betur þekktur sem Geitinn (hann er heimsfrægur á Hornafirði).

Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf? 

Nei ég get ekki sagt það.

Hvað er það sem þú þarft mest að bæta í þínum golfleik? 

Eftir þetta sumar er það sennilega allt... En væri til í að geta slegið Dræverinn betur.

Aldur: 41

Klúbbur:  GHH

Forgjöf: 19,6

Uppáhaldsmatur:  

Lagsagne-aið hjá henni Helgu minni.

Uppáhaldsdrykkur:

Ætli það sé ekki Collab þessa dagana en segi seint nei við einum köldum.

Uppáhaldskylfingur: Hovland er helvíti sexy þessa dagana.

Þrír uppáhaldsgolfvellir:

1. Silfurnesvöllur (einstaklega fallegur völlur) 2. Völlurinn á Vopnafirði er skemmtilegur 3. Ætli ég setji ekki Setbergsvöllinn hérna. (Annars finnst mér La Finca ótrúlega skemmtilegur líka).

Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi:

7 holan á silfurnesvelli. 18 hola á jaðarsvelli og 6 holan á Setbergsvelli.

Erfiðasta golfholan: klárlega 3 holan á Silfurnesvelli. 

Erfiðasta höggið: Upphafshöggið á 3 holu á Silfurnesvelli.                          

Ég hlusta á:

Ég er búinn að vera að vinna með sama blandaða playlistan síðan í 8 bekk hugsa ég.

Besta skor: 9 holum 37 högg og á 18 holum 81 högg.

Besti kylfingurinn: Ég

Golfpokinn

Dræver: Callaway Mavrik

Brautartré: Taylormade RBZ stage 2

Járn: taylormade stealth 

Fleygjárn: blandað

Pútter:

Var að kaupa mér Cobra sik technology putterinn ( var með spiderinn en ég skemmdi hann óvart).

Hanski: akkúrat núna er ég að nota under armor hanska.

Skór: Puma RS-G helvíti gott að labba í þeim.

Bragi að spila á heimavellinum á Hornafirði