Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Forstjóri Símans er kylfingur vikunnar
Fimmtudagur 16. júní 2011 kl. 11:45

Forstjóri Símans er kylfingur vikunnar

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann stendur svo sannarlega á tímamótum en hann fagnar 40 ára afmæli sínu í dag og því tilvalið að Sævar verði kylfingur vikunnar hjá okkur. Hann er menntaður í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og hefur starfað í símabransanum í 14 ár. Sævar var einnig liðtækur knattspyrnumaður með ÍA á Akranesi en er farinn að leika golf af nokkrum krafti. Kylfingur.is fékk að kynnast honum aðeins betur.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
Fyrir 2 árum átti bara nægan tíma aflögðu.

Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
Átti glæsilegan feril með ÍA í knattspyrnu. Skoðið kfia.is

Helstu afrek í golfinu?
Að byrja.

Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
Skaut upphafshögginu í skálan í holtinu af rauðum teig.

Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
Styrkleiki=Stöðuleiki
Veikleiki=einbeitning, á það til að sofna þegar ég stilli mér upp.

Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju?
Jón Sæm hann er svo góður en Tiger er ekki eins góður.

Ef ekki golf þá hvað?
Karete en hnéð leyfir það ekki.

Ertu búinn að æfa mikið í vetur og kemur þú heitur inn í keppnistímabilið?
Búin að vera hjá kennurum í 2 ár og alveg sjóðandi heitur.

Hefur þú farið holu í höggi eða verið nálægt því?
Mjög oft, svona í 4 til 6 höggi á hverri braut.

Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?
HG (Herbert Guðmundsson) - svaraðu kallinu.

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Var í sama klúbbhúsi og Nick Faldo, er það nóg?

Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf?
Alltaf með ÍA trefil.

Hvert er uppáhaldshöggið í golfi?
Þegar ég hitti boltann.

Hver er besti kylfingur Íslands fyrr og síðar?
Birgir Leifur.

Hvað finnst þér skemmtilegast og leiðinlegast við golf?
Leiðinlegast að tapa fyrir Jóni Sæm sem gerist alltaf. Skemmtilegast að fara í klúbbhúsið í einn kaldan.

Hvað er það sem þú þarf mest að bæta í þínum golfleik?
Muna að horfa á boltan og róa mig niður.

Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli?
Það var á Celtic Manor vellinum 2010 í apríl minn fyrsti hringur í golfi. Ég var síðastur á teig eins og venjulega og var í símanum og eitthvað utan við mig og var ekkert að fylgjast með. Svo kom að mér og ég stilti mér upp og skaut og félaganir trylltust úr hlátri þá hafði ég slegið í ranga átt.

Staðreyndir:
Nafn: Sævar Freyr Þráinsson.
Aldur: 40
Klúbbur: GSÍ kort.
Forgjöf: Er ofmetinn.
Fyrirmynd: Vinir mínir í club 71.
Masters eða Opna breska? Opna Breska
St. Andrews eða Pebble Beach? St. Andrews auðveldur, 148 högg.
Uppáhalds matur: Kúttmagi.
Uppáhalds drykkur: Bjór.
Uppáhalds golfhola:17. holan á Garðavelli, er með hana nánast í garðinum heima.
Erfiðasta golfholan: Nítjánda.
Ég hlusta á: Vini mína, þeir eru bestir.
Besti völlurinn: Garðavöllur á Akranesi
Besta skor (hvar): 126 högg, Garðavöllur
Besta vefsíðan: Vodafone.is
Besta blaðið: Víkurfréttir
Besta bókin: Stóri kvennafræðarinn
Besta bíómyndin: Dirty Dancing
Besti kylfingurinn: Birgir Leifur

Golfpokinn
Dræver: Cobra SS hi-cor
Brautartré: Tré hvað
Blendingur/Hybrid: Ping
Járn: Ping mjög mikil hjálp
Fleygjárn: Camus XO fleygur
Pútter: 47“ hökupútter.
Hanski: Vírnet þessi guli (ÍA)
Skór: Támjóir