Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Þarf að stilla dræverinn til að vinna næsta græna jakka
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 12. apríl 2026 kl. 11:49

Þarf að stilla dræverinn til að vinna næsta græna jakka

Rory Mcilroy þarf að bæta upphafshöggin í lokahringnum til þess að geta unnið næsta græna jakka, segir Trevor Immelmann, sigurvegari á Masters 2008 og núverandi sjónvarpsmaður. 

Hann sagði í viðtali á CBS sjónvarpsstöðinni að hann hafi komist upp með ónákvæm upphafshögg fyrstu tvo dagana en ekki þann þriðja. „Hann hitti bara 8 brautir af 14 og dræverinn var líka oft að svíkja hann á fyrstu tveimur dögunum, t.d. á par 5 holunum en hann lék þar samt á 7 undir pari. Hann hleypti öðrum inn í titilbaráttuna með eigin spilamennsku,“ sagði Immelmann en Rory var einn af fáum sem léku yfir pari á þriðja hringnum.