Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Frestun á AT&T National - Leikur hafinn en engir áhofendur
Laugardagur 30. júní 2012 kl. 19:07

Frestun á AT&T National - Leikur hafinn en engir áhofendur


Mikinn storm hefur gert á Congressional vellinum í Maryland í Bandaríkjunum undanfarinn sólarhring en tveir hringir af fjórum eru búnir á AT&T National mótinu sem fram fer á vellinum. Tré hafa rifnað upp með rótum og dreifst yfir allan völlinn ásamt skemmdum á jarðvegi og glompum svo eitthvað sé nefnt. Þriðji hringur er þó farinn af stað á Congressional, sex klukkutímum á eftir áætlun og keppendur leika í þriggja manna hollum í stað tveggja. Það er þó ekki einu áhrifin sem stormurinn hefur haft en mótshaldarar hafa ákveðið að engir áhorfendur fái að koma inn á völlinn það sem eftir lifir móts. Það er vegna þess að enn er hætta á fellibyljum og vegna þess að mörg tré hafa losnað og gætu skapað hættu fyrir þá þúsundir áhorfenda sem annars væru á svæðinu.

Hunter Mahan er í forystu á sjö höggum undir pari en á eftir honum koma þrír kylfingar á fimm undir. Tiger Woods er í baráttunni á tveimur undir eftir tvo daga en seinni tveir dagarnir í mótinu verða líklega ekki eins og hann er vanur, engin hróp, ekkert klapp og engir áhorfendur. Fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem teknar eru eftir ósköpin sem gengu yfir í gær og í morgun.









Myndir - Opinber myndasíða PGA mótaraðarinnar