Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Gestapistill: Af hverju er alltaf deilt með fimm í Texas Scramble?
Það er gaman í Texas Scramble
Miðvikudagur 21. október 2015 kl. 14:00

Gestapistill: Af hverju er alltaf deilt með fimm í Texas Scramble?

Skyldu það vera fleiri en ég sem hafa velt fyrir sér vitleysunni sem viðgengst þegar reiknuð er út forgjöf í Texas Scramble? Nú finnst mér Texas Scramble afskaplega skemmtilegt afbrigði af golfleik en er því sem næst hættur að taka þátt í slíkum mótum. Ástæðan? Ég á því sem næst engan möguleika á að keppa til verðlauna vegna vitlauss útreiknings á forgjöf.

Eins og nafnið bendir til er Texas Scramble upprunnið í Bandaríkjunum og í upprunalegu útgáfunni af þeim leik eru fjórir saman í liði (stundum þrír) og leika saman í holli. Mótsstjórn sér yfirleitt um að raða saman í holl þannig að forgjöfin yfir línuna verði sem jöfnust. Svo að leik loknum er deilt í samanlagða forgjöf liðsins með 5. Ef fyllsta réttlætis væri gætt ætti að deila með 4 en með því að deila með 5 jafnast munurinn frekar út, sé einhver með óeðlilega háa forgjöf. Sem sagt allt mjög eðlilegt enda liðin jöfn að getu.

Líklega hefur þetta afbrigði golfsins borist til Íslands með einhverjum sem leikið hefur það í Bandaríkjunum og viljað kynna það hér. Fljótlega kom í ljós að Íslendingar vildu frekar hafa tvo í liði en fjóra, sem er svo sem allt í lagi, og þannig er algengast að spila Texas Scramble á Íslandi. Nema hvað sá sem kynnti afbrigðið hér á landi hefur eflaust tilkynnt að deila ætti í samanlagða forgjöf með 5, það væri alltaf gert í Bandaríkjunum. Nú þarf ekki ýkja kláran stærðfræðing til að finna út að þetta stemmir bara ekki þegar tveir eru í liði, heldur ætti þá að nota töluna 2,5. Þetta virðist forráðamönnum mótahalds hjá golfklúbbum á Íslandi vera fyrirmunað að skilja. Þegar ég hef spurst fyrir um hvers vegna sé deilt með 5, burtséð frá fjölda þátttakenda í liði, er svarið ávallt hið sama: „Það hefur alltaf verið deilt með 5.“ Þetta virðist sem sagt vera orðin óumbreytanleg staðreynd, talan fimm er orðin heilög. Svo þegar litið er yfir liðin sem bóka sig til leiks, kemur í ljós að tveir forgjafarlágir kylfingar hóa sig gjarnan saman í lið; skiljanlega þar sem þeir eiga mesta möguleika á sigri.

Skoðum aðeins hvernig þetta kemur út. Við hjónin erum bæði með frekar háa forgjöf, eða um 21. Segjum svo að við færum í Texas Scramble á móti tveimur meistaraflokksmönnum, sem væru hvor um sig með 2 í forgjöf. Þá myndi forgjafarreikningurinn líta þannig út:

Við hjónin:      21 + 21 = 42 : 5 =  8,4 eða 8 í leikforgjöf.

Meistararnir:     2 +   2 =   4 : 5 =  0,8 eða 1 í leikforgjöf.

Dettur einhverjum í hug að ætla að munurinn á þessum tveimur liðum, miðað við að spila 18 holur, sé ekki nema 7 högg? Lítum þá á hvernig forgjöfin myndi reiknast, væri deilt með 2,5 eins og eðlilegt væri samkvæmt bandaríska kerfinu:

Við hjónin:      21 + 21 = 42 : 2,5 = 16,8 eða 17 í leikforgjöf

Meistararnir:     2 +   2 =   4 : 2,5 =   1,6 eða   2 í leikforgjöf.

Þarna er munurinn kominn upp í 15 högg sem ætti að gefa okkur hjónakornunum smáséns á að standa eitthvað í meisturunum.

Ef fyllsta réttlætis væri gætt (eins og í höggleik eða punktakeppni) og deilt með tveimur, þá fengjum við hjónin 22 í forgjöf og meistararnir 2 og þar með stæðu liðin nokkuð jafnt að vígi. Hins vegar myndi ég alveg sætta mig við að deilt væri með 2,5. 

Ég á erfitt með að trúa því að í mótanefndir klúbbanna veljist fólk sem er svo skyni skroppið á stærðfræðilegan skilning að það sjái ekki þessa endaleysu og haldi áfram þeirri forheimskun að deila með 5, bara af því að það hefur alltaf verið gert. Að mér hefur stundum læðst sá illgirnislegi grunur að þeir sem sitja í mótanefndum séu alla jafna með frekar lága forgjöf og sjái sér því hag í að halda vitleysunni áfram. En kannski er bara ljótt að hugsa svona.

Hvað sem öðru líður þá mun ég ekki taka þátt í tveggja manna Texas Scramble meðan þessi della er við lýði (eins og mér þykir nú gaman að spila Texas Scramble). Ég nenni hreinlega ekki að spila í mótum þar sem ég á nákvæmlega engan möguleika á að vinna.

Sigurgeir Jónsson

félagi í Golfklúbbi Vestmannaeyja