Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Gunnlaugur Árni skrifar söguna: Valinn í Arnold Palmer Cup annað árið í röð
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 6. maí 2026 kl. 09:56

Gunnlaugur Árni skrifar söguna: Valinn í Arnold Palmer Cup annað árið í röð

Íslenski landsliðskylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur náð þeim merka áfanga að vera valinn í alþjóðlega úrvalsliðið fyrir Arnold Palmer Cup annað árið í röð. Mótið, sem almennt er talið sterkasta áhugamannamót heims, fer fram á hinum glæsilega Tralee golfvelli á Írlandi dagana 3.–5. júlí næstkomandi.

Arnold Palmer Cup fylgir sama fyrirkomulagi og Ryder-bikarinn, þar sem 24 af bestu háskólakylfingum Bandaríkjanna mæta 24 af bestu alþjóðlegu leikmönnunum (12 körlum og 12 konum í hvoru liði). Sterkleiki mótsins er óumdeildur, en á síðasta ári fékk það fullt hús stiga á heimslista áhugakylfinga.

Með valinu skipar Gunnlaugur sér í hóp með risanöfnum á borð við Jon Rahm, Ludvig Åberg og Collin Morikawa, en enginn þeirra var valinn oftar en tvisvar í mótið á sínum tíma. Miðað við að Gunnlaugur er aðeins á sínu öðru ári í háskólagolfinu á hann raunhæfan möguleika á að bæta það met síðar.

Gunnlaugur, sem er fæddur árið 2005 og stundar nám við LSU (Louisiana State University), hefur farið mikinn á sínum háskólaferli. Hann situr sem stendur í 11. sæti heimslistans og hefur sigrað á mótum á báðum sínum tímabilum í Bandaríkjunum.

Í fyrra átti hann stóran þátt í 35–25 sigri alþjóðlega liðsins þegar hann skilaði tveimur vinningum og sýndi einstakan stöðugleika. Nú beinist athyglin að Írlandi þar sem hann og félagar munu freista þess að verja titilinn í júlí.

Í 22 manna Evrópuhóp karla og kvenna er aðeins einn annar kylfingur frá Norðurlönundum auk Gunnlaugs. Meðal kylfinga í karlaliði Evrópu eru Luke Poulter en hann er sonur Ian's Poulter frá Englandi en hann er einn sigursælasti kylfingur Evrópu í Ryder bikarnum. 

Tralee völlurinn er á suðvestur strönd Írlands og er hannaður af gömlu kempunni Arnold Palmer. Hann er magnaður völlur við sjávarsíðuna og var opnaður eftir hönnun Palmers árið 1984.