Giulia Sergas á toppinn í Ástralíu

Laura Davies féll af toppnum á Opna ástralska mótinu á Evrópumótaröð kvenna þar sem hún lék annan hringinn í morgun á 76 höggum, eða þremyr yfir pari. Hin ítalska Giulia Sergas skaust upp í efsta sætið í hennar stað með því að leika á 69 höggum og er alls á 7 höggum undir pari, þremur höggum á undan næstu konum.
Jafnar í öðru sæti eru tvær kóreskar konur, He-Yong Choi og Soo-Jin Yang, en Davies er ásamt Katherine Hull og áhugakonunni Alison Whittaker í sjöunda sæti á tveimur undir pari.
Undrabarnið Alexis Thompson, sem er aðeins 15 ára en engu að síður hæst skrifaðasta áhugakona heims, er meðal keppenda og er á pari eftir hringina tvo.
Myndir/Golfsupport.nl - Sergas átti góðan hring í dag.


