Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

GKG og GR Íslandsmeistarar í Sveitakeppni GSÍ
Sigursveit GKG með liðsstjóranum Gunnari Páli og þjálfaranum Derric Moore eftir sigurinn í Leirunni.
Sunnudagur 12. ágúst 2012 kl. 18:53

GKG og GR Íslandsmeistarar í Sveitakeppni GSÍ

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar sigraði í 1. deild karla í Sveitakeppni GSÍ 2012 eftir sigur á Golfklúbbnum Setbergi 4/1.

GKG byrjaði á því að vinna fjórmenninginn, Kjartan Dór Kjartansson og Ragnar Már Garðarsson lögðu Tryggva V. Traustason og Ragnar Þór Ragnarsson 6/5. Í tvímenningnum vann Birgir Leifur Hafþórsson Ólaf H. Jóhannesson 3/2, Alfreð Brynjar Kristinsson vann Hrafn Guðlaugsson 2/0 og Sigmundur E. Másson vann Kristinn G. Bjarnason 2/1. Helgi B. Þórisson vann eina tvímenninginn fyrir GSE þegar hann lagði Guðjón H. Hilmarsson 1/0.

Í leik um 3. sætið vann Golfkúbbur Reykjavíkur Keilismenn 3/2 í jafnri viðureign. Þar vakti athygli sigur hins unga Dags Ebenezerssonar á Þórði R. Gissurarsyni í tvímenningi. Golfklúbbur Suðurnesja varð í 5. sæti eftir sigur á GKj 3/2. Leynismenn á Akranesi og Eyjamenn féllu.

Í 1. deild kvenna sigraði GR eftir jafna viðureign gegn GK. Guðrún Pétursdóttir og Hildur K. Þorvarðardóttir unnu fjórmenninginn fyrir Gr og síðan fylgdu þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir því eftir með sigrum í tvímenningi. Tinna Jóhannsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir unnu sína leiki hjá GK, lokastaðan 3/2 fyrir GR. Í 3. sæti varð GKG eftir 3,5/1,5 sigur á NK í úrslitum um 3. sætið.

Birgir Leifur sigraði Ólaf Hrein Jóhannesson í tvímenningi og lauk leiknum á 16. braut.

Alfreð Brynjar vann Hrafn Guðlaugsson í leik þeirra í úrslitunum í dag.

Sigmundur Einar Másson gat tryggt GKG titilinn með þessu pútti á 16. flöt en ekki vildi boltinn í.

Hér er Sigmundur á 17. braut með Kristni G. Bjarnasyni sem veitti honum harða keppni. Leiknum lauk á 17. flöt og sigur GKG gegn GSE þannig tryggður.

Helgi B. Þórisson vann eina stig GSE gegn GKG þegar hann lagði Guðjón H. Henningsson.

Hrafn Guðlaugsson á 13. teig. Hann varð að láta í minni pokann gegn Alfreð B. Kristinssyni.