Cameron Young óstöðvandi á Blue Monster - Scheffler í 2. sæti þriðja mótið í röð
Bandaríkjamaðurinn Cameron Young fagnaði sínum öðrum sigri á tímabilinu í gærkvöldi þegar hann bar sigur úr býtum á Cadillac Championship mótinu, sem fram fór á hinum sögufræga Blue Monster velli á Trump National Doral í Flórída. Young lék frábært golf og leiddi mótið frá fyrsta hring til þess síðasta. Trump forseti fylgdist vel með og var á staðnum.
Young kom í hús á samtals 19 höggum undir pari, en hann lék lokahringinn á 68 höggum (–4). Sigurinn var afar sannfærandi því hann endaði heilum sex höggum á undan besta kylfingi heims, Scottie Scheffler, sem varð að sætta sig við annað sætið á 13 höggum undir pari. Þetta var þriðja mótið hans í röð þar sem hann lendir í 2. sæti.
„Þegar völlurinn er svona erfiður og aðstæðurnar krefjandi, þá virðist mér ganga betur að halda einbeitingu,“ sagði hinn 28 ára gamli Young eftir sigurinn. Hann fékk 3,6 milljónir dollara í verðlaunafé, um 450 millj. kr. en þetta er næst stærsta vinningsupphæð hans á ferlinum. Hann fékk 5,4 millj. Dollara fyrir sigurinn á Players nú í vor.
Atvik á annarri braut lokahringsins vakti mikla athygli, en þar dæmdi Young á sjálfan sig víti þegar boltinn hans hreyfðist óvænt á brautinni. Þrátt fyrir refsinguna náði hann að bjarga pari á holunni og lét atvikið ekki slá sig út af laginu. Slík yfirvegun einkenndi spilamennsku hans alla helgina.
- Cameron Young: –19 (64-67-70-68)
- Scottie Scheffler: –13 (71-67-69-68)
- Ben Griffin: –12 (70-70-68-68) T4. Adam Scott: –11 T4. Sepp Straka: –11 T4. Si Woo Kim: –11
Cameron Young called a one-stroke penalty on himself on No. 2 Sunday @Cadillac_Champ after causing his ball to move at address.
He still saved par and maintains a five-shot lead.
📺 PGA TOUR LIVE on ESPN+ pic.twitter.com/WcmHdr7MNF


