Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Guðrún Brá komst ekki áfram í Máritíus - keppir næst í Þýskalandi
Sunnudagur 3. maí 2026 kl. 10:20

Guðrún Brá komst ekki áfram í Máritíus - keppir næst í Þýskalandi

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili náði sér ekki á strik á MCB mótinu í Máritíus nú um helgina en þetta er í fyrsta sinn sem LET mót er haldið þar. Leikið er á Legend vellinum á Constance Belle Mare Plage svæðinu. Hafnfirðingurinn lék hringina tvo á 77 o g 76 höggum og endaði á níu höggum yfir pari og komst ekki áfram inn í þriðja hringinn.

Þetta var þriðja mót Guðrúnar á LET Evrópumótaröðinni, hún lék á tveimur í S-Afríku og svo í Máritíus. Hún hefur ekki náð að fylgja eftir góðum árangri á Sunshine mótaröðinni sem hún tók þátt í fyrr í vetur.

Guðrún verður næst á ferðinni eftir tvær vikur á German Open í Þýskalandi en þar er Ragnhildur Kristinsdóttir þrettánda á biðlista og gæti dottið inn í mótið.