Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs stefnir á að efla félagsstarfið
Við á Kylfingi slógum á þráðinn til þeirra í Golfklúbbi Fljótsdalshéraðs og heyrðum í þeim hljóðið.
Kári Hlíðar Jósefsson formaður Golfklúbbs Fljótsdalshéraðs varð fyrir svörum og var hann ánægður með það hvert klúbburinn væri að stefna.
Við ræddum um allt frá því hvernig völlurinn væri, félagsstarf, unglingastarf og margt fleira. En hvernig kom völlurinn undan vetri og standa einhverjar breytingar yfir á honum.
„Hann kom mjög vel undan vetri en eins og annars staðar á landinu þá tók hann seint við sér þar sem ekki var mikið um hlýindi. Í dag er hann aftur á móti orðinn mjög góður, flatirnar til að mynda rennisléttar en frekar harðar sökum þurrviðris en næstu dagar ættu að kippa því í liðinn“ sagði Kári kátur rigningu dagsins. „Svo ætti sprettan að aukast til muna með henni líka.“
„Við erum að huga að breytingum á 9. holunni en hún er par 3 hola. Við erum að hugsa um að færa flötina og setja vatn fyrir framan, fá aðeins betra lúkk á hana“.
Klúbburinn hefur ekki haft eiginlegt klúbbhús til afnota þar sem bæði landareign og húsnæðið á staðnum er í einkaeigu. Breytinga er þó að vænta í þeim málum og vonast Kári til þess að félagsstarf aukist eftir þær breytingar. Félagar í klúbbnum eru tæplega 80 en inn í þeirri tölu eru unglingarnir ekki, að þeim viðbættum tæplega 110 manns.
„Eftir tvo daga erum við að fara að skrifa undir samning um leigu á húsinu svo hægt sé að efla félagsstarfið á klúbbnum. Það verður stórt skref fyrir okkur þar sem lítið sem ekkert slíkt starf hefur getað þrifist af þeim sökum.“
„Unglingastarfið hefur til dæmis átt erfitt uppdráttar en nú er breyting þar á. Um 30 krakkar eru nú að æfa hjá okkur og eru æfingar tvisvar í viku. Fjórar helgar í sumar fáum við svo Jón Karlsson PGA kennara til að vera með kennslu fyrir þau.“
Með þessum samningi verður einnig farið í endurbætur á húsnæðinu sem hefur tekið litlum sem engum endurbótum í tugi ára.
Samstarf klúbbanna á Austurlandi bar líka á góma en þar ber helst að nefna að eitthvað er reynt að kaupa inn sameiginlega, eins og áburð.
„Við erum með vinavallasamning á milli klúbbana hér sem gerir klúbbmeðlimum kleift að greiða einungis 1.000 kr. á öðrum völlum hér fyrir austan. Einnig pössum við upp á það að mótin séu ekki að skarast svo kylfingar hér í kring geti sótt mót hjá hinum klúbbunum.“
Austan við Akureyri í norðri og austan við Hellishóla í suðri eru engir 18 holu golfvellir. Er einhver breyting á því á næstu misserum?
„Nei, ekki á næstunni. Þó var teiknaður 18 holu völlur hér um árið en landið var síðan selt til annarra aðila og því varð ekkert af því. Samningur okkar hér á Ekkjufellsvelli er til 2040, eftir það er aldrei að vita hvað gerist. Hugsanlega þurfum því að fara að huga að nýju svæði einhvern tímann í framtíðinni. Hver veit hvort þar verður 18 holu völlur.“

5. brautin á Ekkjufellsvelli

Séð frá 5. brautinni yfir á þá sjöttu.

Séð út æfingasvæðið.


