Golfklúbbur Selfoss opnar nýtt æfingasvæði
Golfklúbbur Selfoss opnaði í dag nýtt æfingasvæði við golfvöll klúbbsins, Svarfhólsvöll. Nýja æfingasvæðið er austan megin við 1. holu, þar sem gamla æfingasvæðið fer undir 10. holu.
„Þetta æfingaskýli verður þarna í nokkur ár eða þangað til íþróttamiðstöð GOS verður byggð, en í því húsi verður inniaðstaða, æfingaskyli og klúbbhús,“ sagði Hlynur Geir Hjartarson, framkvæmdastjóri GOS, þegar framkvæmdir stóðu yfir en umrætt hús verður byggt á núverandi 1. braut.
Myndir af æfingasvæðinu má sjá hér fyrir neðan:


