Iceland Golf Expo vakti mikla athygli – þúsundir gesta sóttu sýninguna
Mikill fjöldi gesta sótti golfsýninguna Iceland Golf Expo um síðustu helgi. „Stemningin í Laugardalshöll var frábær alla helgina og ljóst að Iceland Golf Expo hefur fest sig í sessi sem mikilvægur og stærsti vettvangurinn fyrir golfáhugafólk og atvinnulíf tengt golfi og útivist,“ segir í tilkynningu frá sýningarhaldara.
Á Iceland Golf Expo kynntu sextíu aðilar það nýjasta í golfheiminum. IGE var haldin í fyrsta sinn hér á landi og var markmið hennar að sameina fyrirtæki, golfklúbba og þjónustuaðila sem tengjast golfi á einum vettvangi.
Á sýningarsvæðinu gátu gestir meðal annars prófað golfherma, kynnt sér nýjustu kylfur og golfbúnað, skoðað golfferðir, golfbíla og hlustað á fjölbreytta fyrirlestra frá fagfólki í golfi.
Fjölmörg fyrirtæki og golfklúbbar tóku þátt í sýningunni og kynntu vörur sínar, þjónustu og nýjungar fyrir áhugasömum gestum.
Skipuleggjendur lýstu mikilli ánægju með viðburðinn og þökkuðu gestum, sýnendum og samstarfsaðilum fyrir þátttökuna. „Með góðum undirtektum má gera ráð fyrir að Iceland Golf Expo verði áfram fastur liður í íslensku golfsamfélagi á komandi árum,“ segja forráðamenn Iceland Golf Expo.













