Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Fimmtudagur 7. maí 2009 kl. 13:16

Golfklúbburinn Teigur - nýjung á íslenskum golfmarkaði

Golfklúbburinn Teigur var stofnaður nýlega af golfáhugamönnum og er helsta markmið klúbbsins að vera vettvangur fyrir fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í golfinu og einnig fyrir þá sem ekki hafa nægan tíma til að spila golf og hafa hingað til staðið utan golfklúbba.  Golfklúbburinn Teigur er ódýr lausn fyrir alla þá sem vilja stunda golf en hafa ekki talið þess virði að leggja peninga í að vera félagsmenn í golfklúbbi heldur einungis greitt vallargjöld í hvert skipti sem leikið er.  Eins og allir kylfingar vita er teigur upphafsstaður hverrar golfholu og vísar nafn klúbbsins til þess.

Í fyrsta skipti á Íslandi verður hægt að kaupa félagsaðild að golfklúbbi beint á vefnum og það fyrir einungis 19.900 krónur.  Þeir sem vilja gerast meðlimir þurfa einungis að fara inn á heimasíðu Teigs, www.teigur.is og framhaldið skýrir sig sjálft. Félagsskírteini verða send til félagsmanna innan 3 daga. Allt gert með það í huga að hafa ferlið eins einfalt og hægt er fyrir viðskiptavininn.

Samstarfsaðilar Golfklúbbsins Teigs eru Golfklúbbur Þorlákshafnar, sem jafnframt er móðurklúbbur Teigs, Golfklúbbur Bakkakots, Golfklúbbur Suðurnesja og Setbergsvöllur.  Innifalið í félagsgjaldi Golfklúbbsins Teigs er einn hringur á hverjum þessara valla, félagsaðild að GSÍ og margvísleg golf og vörutilboð sem auglýst verða á heimasíðu klúbbsins í sumar, auk þess sem boðið verður uppá golfkennslu á samstarfsvöllum klúbbsins á mjög sanngjörnu verði.

 

 

Örninn 2025
Örninn 2025