Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

GolfTV: Samantekt frá lokahringnum á McGladrey Classic
Mánudagur 27. október 2014 kl. 07:24

GolfTV: Samantekt frá lokahringnum á McGladrey Classic

Það var mikil spenna á lokahringnum á McGladrey Classic meistaramótinu í gær á PGA mótaröðinni. Robert Streb frá Bandaríkjunum var fimm höggum á eftir efstu mönnum þegar hann hóf keppni á lokahringnum en hann stóð uppi sem sigurvegari eftir þriggja manna bráðabana. Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá brot af því helsta á lokahringnum.

Þetta fyrsti sigur Bandaríkjamannsins á PGA mótaröðinni. Streb fékk fugl á annarri holu bráðabanans gegn Will MacKenzie frá Bandaríkjunum og Suður-Afríkumanninum Brendon de Jonge.

MacKenzie, féll úr leik á fyrstu holu í bráðabananum þar sem hann fékk skolla. Streb var fimm höggum á eftir efstu mönnum fyrir lokahringinn. Hann lék lokahringinn á 63 höggum eða -7 og var hann samtals á 14 höggum undir pari. Með sigrinum tryggði Streb sér tveggja ára keppnisrétt á PGA mótaröðinni og hann tryggði sér keppnisrétt á Mastersmótinu á Augusta. 

Lokastaðan