Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

GolfTV: Tíu bestu höggin í Deutsche Bank mótinu
Miðvikudagur 31. ágúst 2011 kl. 14:52

GolfTV: Tíu bestu höggin í Deutsche Bank mótinu

Annað mótið í FedEx-úrslitakeppninni, Deutsche Bank Championship mótið, hefst á morgun í Boston. 100 efstu kylfingarnir á FedEx-stigalistanum fá þátttökurétt í mótinu. Baráttan um efsta sætið á listanum eykst með hverju móti en sá kylfingur sem verður efstur á stigalistanum í lok úrslitakeppninnar hlýtur 10 milljónir dollara í sinn hlut.

Í myndbandinu hér að ofan má sjá tíu bestu höggin í Deutsche Bank mótinu í gegnum tíðina. Kylfingar líkt og Vijay Singh, Justin Leonard, Zach Johnson, Phil Mickelson og Tiger Woods hafa átt glæsileg högg í mótinu í gegnum tíðina.

Örninn 2025
Örninn 2025