Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Graeme Storm enn efstur á KLM Open
Föstudagur 7. september 2012 kl. 16:45

Graeme Storm enn efstur á KLM Open

Englendingurinn Graeme Storm hefur leikið frábært golf fyrstu tvo dagana á Hilversumsche vellinum í Hollandi...

Englendingurinn Graeme Storm hefur leikið frábært golf fyrstu tvo dagana á Hilversumsche vellinum í Hollandi en hann er í forystu á KLM Open mótinu á 11 höggum undir pari. Storm lék hring númer tvö á 66 höggum, fjórum undir pari og á þrjú högg á næstu menn sem eru þeir Gonzalo Fdez-Castano, Scott Jamieson og Peter Hanson allir á átta undir.Storm reynir nú að sigra á sínu öðru móti í evrópsku mótaröðinni en hann hefur átt mjög lélegt tímabil af því sem af er.

Martin Kaymer og Nicolas Colsaerts léku saman í dag ásamt Ryderfyrirliða evrópu, Jose Maria Olazabal en þeir eru báðir í liði hans fyrir Ryderinn seinna í september. Þeir virðast njóta nærveru hans en Kaymer er á fjórum höggum undir pari og Colsaerts á fimm undir en þeir gætu hæglega blandað sér í baráttu efstu manna með góðum hring á morgun. Olazabal lék þó ekki vel, kom inn á 76 höggum eða sex yfir í dag og náði ekki í gegn um niðurskurðinn. Stöðuna er hægt að sjá hér.