Graeme Storm enn í forystu í Suður-Afríku
Englendingurinn Graeme Storm fer með þriggja högga forystu inn í lokahringinn á BMW SA Open sem fram fer á Evrópumótaröðinni þessa helgina.
Samtals hefur Storm leikið hringina þrjá á 17 höggum undir pari, þremur höggum betur en Rory McIlroy sem er annar.
Storm sigraði síðast á Evrópumótaröðinni fyrir 10 árum og því er fróðlegur lokahringur framundan.
McIlroy átti líklega högg dagsins en það kom á 7. holu þegar hann sló beint í holu af rúmlega 100 metra færi.
Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.
Pitch perfect from McIlroy 🎯 pic.twitter.com/G2ODEUo5E8
— The European Tour (@EuropeanTour) January 14, 2017


