Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Graeme Storm fór holu í höggi og er efstur fyrir lokahringinn
Laugardagur 6. september 2014 kl. 16:59

Graeme Storm fór holu í höggi og er efstur fyrir lokahringinn

Graeme Storm átti góðan dag í vinnunni á þriðja keppnisdegi á Omega meistaramótinu í Sviss. Storm fór holu í höggi í dag, vann sér inn glæsilega bifreið, og er efstur fyrir lokahringinn í fjallaloftinu í Ölpunum í Sviss. Storm sló draumahöggið á 11. braut sem er rétt um 200 metra löng en hann er samtals á 16 höggum undir pari vallar.  Tommy Fleetwood lék á 63 höggum í dag og er hann einu höggi á eftir Storm sem lék á 64 höggum í dag.

Staðan á mótinu; 

Storm, sem er í 159. sæti á peningalistanum Race to Dubai,  vann sér inn BMW sportbíl sem er metinn á um 20 milljónir kr.

„Ég fór holu í höggi á móti í Marokkó og fékk lampa í verðlaun fyrir það – þessi verðlaun toppa það svo sannarlega,“ sagði Storm í dag en hann seldi nýlega aðra bifreið sína þar sem hann hafði ekki efni á því að reka tvær bifreiðar. Storm hefur einu sinni sigrað á móti á Evrópumótaröðinni en það var árið 2007 á Opna franska meistaramótinu.