Graeme Storm óánægður með lokahringinn
Þrátt fyrir að Graeme Storm hafi endað á meðal efstu manna á WGC-CA Championship mótinu þá var hann óánægður með lokahringinn á Doral golfsvæðinu í Miami. Storm lék á lokahringnum með sigurvegara mótsins, Geoff Ogilvy og Vijay Singh á lenti í öðru sæti. Storm lék lokahringinn á 71 höggi og varð jafn þeim Nick O‘Hern og Steve Stricker í 6. sætinu. Storm átti frábæran þriðja hring þegar hann lék á 63 höggum og því taldi hann sig geta gert betur á lokahringnum.
„Ég var óánægður með hvernig ég lék á seinni níu holunum á mánudeginum. Ég var stressaður og ekki í jafnvægi. Ég var í góðu standi aðfarnótt mánudags en þegar ég kom aftur út á völlinn þá veit ég eiginlega ekki hvað gerðist,“ sagði Storm
Þrátt fyrir að leika undir getu á lokahringnum þá sýndi Storm góða takta í að bjarga pörum en hann hefði auðveldlega getað endað neðar: „Ég náði að spila seinni níu holurnar á aðeins einu höggi yfir pari. Það voru vonbrigði en vikan var engu að síður frábær og ég naut þess að spila meðal þeirra bestu,“ sagði Storm
Þrátt fyrir að hafa verið óánægður með frammistöðuna á lokahringum þá segir Storm að hringirnir fjórir hafi sýnt fram á að hann sé fyllilega samkeppnisfær með þeim allra bestu.
„Þetta sýnir hversu miklum árangri ég hef náð á undanförnum árum. Ég var að spila með bestu kylfingum heims og vonandi get ég náð þeim staðli sem þeir eru komnir á núna og hugsanlega náð meiri árangri,“ sagði hinn 30 ára gamli Storm, sem varð breskur áhugameistari árið 1999.
Mynd/Skysports: Graeme Storm var ekki sáttur með spilamennsku sína á lokahringum á WGC-CA Championship mótinu.


