Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

GS vill kanna sameiningu við Sandgerði
Föstudagur 11. desember 2015 kl. 13:48

GS vill kanna sameiningu við Sandgerði

Aðalfundur Golfklúbbs Suðurnesja fór fram í vikunni. Þar kom m.a. fram að stór hluti félagsmanna vill kanna sameiningu GS og Golfklúbbs Sandgerðis. 

Viðhorfskönnun var send á alla félaga í GS og alls tóku 148 GSingar þátt í henni (75% karlar, 25% konur). Niðurstöður könnunarinnar munu verða birtar í heild sinni á heimasíðu GS, innan skamms.

Almennt virðust meðlimir vera ánægðir með starfið í klúbbnum; völlinn, starfsfólk, veitingasölu, mótahald o.þ.h.

Tvennt stóð þó uppúr í könnuninni. 9 af hverjum 10 vilja sjá aukið samstarf klúbbanna á Suðurnesjum (t.d. í formi vinavallasamninga) og ¾ vilja kanna möguleika á að sameina GS og GSG.

Þetta verður meðal verkefna næstu stjórnar og lagði Jóhann Páll, formaður GS, til að skipaður verði vinnuhópur sem fyrst til að huga að kostum og göllum við mögulegum samruna Golfklúbbs Suðurnesja og Golfklúbbs Sandgerðis.