Ragnhildur og Andrea góðar í Frakklandi
Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir enduðu jafnar í ellefta sæti á á Arkea Montauban mótinu á LET Access mótaröðinni í Evrópu en leikið var í Frakklandi.
Andrea náði þriðja besta hring lokadagsins en hún lék á þremur undir pari, 69 höggum, og endaði í heildina á -1, 74-72-69. Þetta er besta frammistaða hennar á mótaröðinni í ár.
Ragnhildur lék lokahringinn á 77 (+1) og -1 í heildina, 73-69-73.
Hulda Clara sem lék á -1 á fyrsta hring lenti í vandræðum á öðrum hring og kom inn á fimm yfir pari, +4 í. heildina. Hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
Ragnhildur er í 5. sæti stigalistans en sjö efstu vinna sér þátttökurétt á LET Evrópumótaröðinni, efstu deild kvenna í Evrópu.
Hulda Clara er í 24. sæti og Andrea í 27. sæti stigalistans.
Stigalistinn.


