Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Aron vann þriðja mótið í röð - Eva best hjá kvenfólkinu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 7. júní 2026 kl. 19:52

Aron vann þriðja mótið í röð - Eva best hjá kvenfólkinu

Aron Snær Júlíusson vann sitt þriðja mót í röð á GSÍ mótaröðinni þegar hann lék best allra í Þorlákshöfn. Í kvennaflokki vann Eva Kristinsdóttir úr GM en þetta var hennar fyrsti sigur á mótaröðinni.

Það var spennandi keppni hjá körlunum. GR-ingurin Böðvar Bragi Pálsson var með tveggja högga forskot á Aron Snæ þegar tvær holur voru eftir. Aron Snær gerði sér lítið fyrir og lék 17. holuna á erni (-2) og fékk fugl (-1) á 18. holuna og vann fjögur högg af Böðvari og tryggði sér sigur.

Aron lék á 66-67-67, -16 í heildina.

Böðvar Bragi og klúbbfélagi hans úr GR, Hákon Örn Magnússon voru jafnir í 2.-3. sæti á fjórtán höggum undir pari. Hörku golf hjá efstu mönnum en Hákon Örn fékk 19 fugla á mótinu, mest allra en bæði Aron Snær og Böðvar Bragi fengu báðir þrjá erni.

Eva Kristinsdóttir úr GM vann fimm högga sigur og lék á 73-68-69 höggum, sex höggum undir pari.

Andrea Ýr Ásmundsson úr GA endaði önnur á höggi undir pari og lék á 73-73-69 höggum.

Elsa Maren Steinarsdóttir úr GL og Karen Lind Stefánsdóttir úr GKG voru jafnar í 3. sæti á pari vallarins.

Úrslit mótsins.

Næsta mót á GSÍ mótaröðinni verður Íslandsmót í holukeppni á Hólmsvelli í Leiru 19.-21. júní.