Fréttir

Guðmundur á parinu fyrir lokahringinn
Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
laugardaginn 29. maí 2021 kl. 23:06

Guðmundur á parinu fyrir lokahringinn

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er samtals á parinu eftir þrjá hringi á Irish Challenge mótinu sem fram fer um þessar mundir á Áskorendamótaröðinni. Hann er jafn í 19. sæti fyrir lokahringinn.

Fyrir daginn í dag var Guðmundur á samtals tveimur höggum undir pari. Hann byrjaði aftur á móti illa í dag og var á þremur höggum yfir pari eftir átt holur. Eftir tvo fugla á holum 11 og 16 var hann kominn á eitt högg yfir par en skolli á 17. holunni þýddi að hann endaði daginn á 73 höggum, eða tveimur höggum yfir pari.

Eins og áður sagði er Guðmundur jafn í 19. sæti fyrir lokadaginn en með góðum hring á morgun getur hann hæglega komist á meðal efstu manna.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.