Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Guðmundur og Haraldur í basli í Frakklandi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 22. júní 2025 kl. 15:54

Guðmundur og Haraldur í basli í Frakklandi

Atvinnukylfingarnir Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús lentu báðir í basli í móti vikunnar á Áskorendamótaröð Evrópu en leikið var í Frakklandi.

Guðmundur endaði 36 holurnar á 11 höggum yfir pari eftir að hafa leikið fyrri hringinn á +9 þar sem hann fékk sex skolla og einn þrefaldan skolla. Hann fékk engan fugl. Guðmundur bætti sig annan daginn en lék þá á +2, hann fékk fjóra fugla og jafn marga skolla en síðan einn tvöfaldan skolla. Guðmundur var langt frá niðurskurðin

Haraldur lék fyrsta hringinn á 10 höggum yfir pari en hætti eftir tvær holur á öðrum hring en hann byrjaði á 10. holu og lék hana á 9 höggum. Hann fékk fugl á næstu en hætti þá leik vegna meiðsla í hné. Haraldur ráðfærði sig við sjúkraþjálfara mótsins sem hvatti hann til að hvíla og ná bata.

Örninn 2025
Örninn 2025

Guðmundur Ágúst er ofarlega á biðlista fyrir næsta mót sem verður einnig í Frakklandi.