Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Guðmundur Rúnar mætir með látum á LEK
Suðurnesjamaðurinn Guðmundur Rúnar Hallgrímsson sigraði í sínu fyrsta móti á LEK mótaröðinni.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 29. maí 2025 kl. 15:25

Guðmundur Rúnar mætir með látum á LEK

Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, ellefufaldur klúbbmeistari úr Golfklúbbi Suðurnesja lék á besta skorinu á fyrsta móti Icewear LEK mótaraðarinnar. Guðmundur sem er nýliði á öldungaröðinni lék á 68 höggum en mótið var á Korpúlfsstaðavelil í Reykjavík 25. maí.

Guðmundur Rúnar hefur beðið með eftirvæntingu að hefja leik á LEK mótaröðinni og hefur æft stíft undanfarið sem sjá má á hans leik.

Í punktakeppni kvenna sigraði María M. Guðnadóttir og Ingi Þór Hermannsson karlaflokki.

Örninn 2025
Örninn 2025