Guðný og Svanhildur sigurvegarar á uppskeruhátíð GR-kvenna
Kvennastarfið hjá Golfklúbbi Reykjavíkur hefur verið öflugt og skemmtilegt á þessu golfsumri líkt og undanfarin ár. Uppskeruhátíð GR kvenna fór fram á Korpunni á dögunum í frábæru veðri. Landið/Áin voru leiknar og það spillti ekki fyrir að skorið var með mestu ágætum. Snyrtivörufyrirtækið Dermatude og Nouvelle countour á Íslandi styrkti mótið sérstaklega með veglegum vinningum.
Myndir frá mótinu má sjá á golfmyndir.is.
Úrslit urðu sem hér segir:
Besta skor Guðný María Guðmundsdóttir 91 högg
Punktakeppni:
1. sæti Svanhildur Gestsdóttir 39 p
2. sæti Rut Aðalsteinsdóttir 37 p (betra skor á seinni 9)
3. sæti Guðbjörg Erla Andrésd. 37 p
4. sæti Anna Laxdal Agnarsd. 36 p (betra skor á seinni 9)
5. sæti Sigrún Guðmundsdóttir 36 p
Lengsta teighögg:
Lára Hannesdóttir
Næstar holu í upphafshöggi:
22.braut: Guðbjörg Andrésdóttir (8,95)
25.braut: Margrét Geirsdóttir (1,93)
13.braut: Signý Marta Böðvarsdóttir (1,20)
17.braut: Lára Hannesdóttir
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)


