Fréttir

Guðrún og Berglind um miðjan hóp í Frakklandi
Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
fimmtudaginn 20. júní 2019 kl. 17:33

Guðrún og Berglind um miðjan hóp í Frakklandi

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, og Berglind Björnsdóttir, GR, hófu í dag leik á Montauban Ladies Open sem er hluti af LET Access mótaröðinni í golfi og fer fram í Frakklandi.

Eftir fyrsta hringinn er Guðrún Brá jöfn í 43. sæti á 4 höggum yfir pari. Guðrún fékk alls þrjá skolla, einn tvöfaldan skolla og einn fugl á hring dagsins.


Skorkort Guðrúnar.

Berglind fór seinna af stað og kom inn á 77 höggum eða 5 höggum yfir pari. Hún er jöfn í 55. sæti en alls taka 86 kylfingar þátt í þessu móti.


Skorkort Berglindar.

Annar hringur mótsins fer fram á morgun, föstudag. Hér er hægt að sjá stöðuna.