Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Gull 24 Open á Kiðjabergsvelli föstudaginn og laugardaginn 27.–28. Júní
Þriðjudagur 24. júní 2025 kl. 14:00

Gull 24 Open á Kiðjabergsvelli föstudaginn og laugardaginn 27.–28. Júní

Glæsileg verðlaun og skemmtileg keppni í 24 klukkustundir

Hið vinsæla Gull 24 Open fer fram á Kiðjabergsvelli á föstu- og laugardag. Mótið hefur á undanförnum árum sannað sig sem eitt af skemmtilegustu golfmótum sumarsins og dregur til sín kylfinga hvaðanæva að af landinu og utan landsteinanna.
Keppt verður í fjórum punktakeppnisflokkum, tveimur karlaflokkum og tveimur kvennaflokkum. Að auki verða veitt sérstök verðlaun fyrir besta heildarskor mótsins. Á öllum par 3 holum verða í boði nándarverðlaun, auk þess sem sá eða sú sem nær því að fara fyrst holu í höggi á viðkomandi holum hlýtur sérstök verðlaun. 
Heildarverðmæti verðlauna, sem koma meðal annars frá 66 Norður, Ölgerðinni, Ecco (S4S), Eagle Golfferðum o.fl., er yfir 1,5 milljónir króna, sem gerir Gull 24 Open að einu af ríkulegri golfmótum landsins. Kiðjabergsvöllurinn sjálfur er þekktur fyrir fallegt landslag og fjölbreyttar áskoranir, þar sem náttúran og umgjörðin tryggja einstaka upplifun fyrir kylfinga á öllum getustigum. 
Þórður Rafn Gissurarson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kiðjabergs, segir undirbúning vera á fullu og von á frábæru móti: 
„Það er alltaf mikil tilhlökkun hjá okkur fyrir Gull 24 Open. Þetta er sannkölluð golfhátíð þar sem kylfingar geta bæði spreytt sig á velli sem er í toppstandi og notið skemmtilegrar stemningar. Við erum stolt af því hversu vinsælt mótið er orðið og hlökkum til að taka á móti keppendum — bæði þeim sem koma ár eftir ár og nýjum andlitum.“ 
Auk spennandi keppni er lögð rík áhersla á góða stemningu, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að spreyta sig, njóta félagskapar og hafa gaman á vellinum.
 
Skráning er nú hafin og hvetja skipuleggjendur alla áhugasama til að skrá sig sem fyrst — mótið hefur verið mjög vinsælt undanfarin ár. 
Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24