Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hamarsvöllur í Borgarnesi færir út kvíarnar
Bjarki Pétursson framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness stendur á 17. holu þar sem er stórkostlegt útsýni. Ljósm. óhk
Mánudagur 15. júní 2026 kl. 18:35

Hamarsvöllur í Borgarnesi færir út kvíarnar

Fjölgun iðkenda, nýtt klúbbhús og stækkun golfvallarins meðal helstu áskorana

Á Hamri í Borgarnesi á sér stað mikil uppbygging á aðstöðu Golfklúbbs Borgarness. Átján holu völlurinn er hannaður til að ögra kylfingum á öllum stigum, frá byrjendum til atvinnumanna og býður upp á skemmtilega golfupplifun. Með töfrandi útsýni yfir nærliggjandi fjöll og strandlengju býður golfklúbburinn upp á einstaka blöndu af náttúrufegurð og góðum vallaraðstæðum. GB var stofnaður með það að markmiði að skapa samfélag kylfinga sem brennur fyrir golfíþróttinni. Hvort sem fólk er að leita að því að auka færni, keppa á mótum eða einfaldlega að njóta stórkostlegs útsýnis yfir landslagið í kring, þá er eitthvað fyrir alla. Blaðamaður Skessuhorns fór nýlega á staðinn og kynnti sér aðstæður og ræddi við Bjarka Pétursson, framkvæmdastjóra Golfklúbbs Borgarness.
Íslandsmeistari í golfi 2020 og atvinnumennska

Sjálfur er Bjarki fremsti kylfingur sem Borgfirðingar hafa átt, var atvinnumaður um árabil og Íslandsmeistari 2020. En er hann enn að spila? „Já, en það er nú orðið minna núna en ég er búinn að spila töluvert á lífsleiðinni. Ég spilaði nokkur ár í þýsku Bundesligunni fyrir lið sem heitir Berlin Wannse, með góðum manni sem heitir Arnar Már Ólafsson sem var þá að kenna mér. Fór síðan til Bandaríkjanna í háskóla í fjögur ár og lék þar fyrir háskólaliðið í fyrstu deild og náði svo þeim merka áfanga, sem alla íslenska golfara dreymir um, að verða Íslandsmeistari í golfi. Ég náði þeim áfanga í Mosfellsbæ árið 2020. Það gaf mér ein þrjú til fjögur ár í atvinnumennsku. En svo kallaði bara fjölskylda, börn og húsnæðismarkaðurinn á Íslandi – og annað á mann, sem gerir það svolítið erfitt að vera í svona brasi. Því þetta er þannig atvinna að þú þarft að ná ansi langt þar til hún fer að skila góðum tekjum. Ég nýt mín vel í þessu starfi og hef mjög gaman af þessu. Ég hef gaman af því að reyna að koma vel fram við fólk og bjóða það velkomið. Þetta starf er vissulega yfirgripsmikið af því að eins og staðan er núna þá er maður svolítið einn í þessu, með marga bolta á lofti. Við erum að vinna í því að fá okkar frábæra vallarstjóra Harald Má Stefánsson í heilsársstöðu hérna. Þar gæti sveitarfélagið komið sterkt inn, en ég vil taka það fram að það gerði mjög vel við okkur í lok árs og við erum þeim ofboðslega þakklát fyrir það. Það breytir miklu í starfseminni okkar,“ segir Bjarki.


Skemman er tímabundin lausn

Þið voruð í gamla Hamarshúsinu, er það ekki, en nú hafið þið ráðist í byggingu á nýju húsi. Hvað er þetta hús stórt? 

„Já, til 2018 vorum við í gamla Hamarsbænum. „Samstarfið við Hótel Hamar hófst upp á Hamarsbæ en þar sáu þau um veitingareksturinn. Nokkrum árum síðar færðist móttakan niður á hótelið og færðist þá starfsemin í heild þangað. Síðan hefur golfíþróttin stigið svo stórt skref að þetta er ekki lengur hundrað manna klúbbur, þetta er orðið að 500 manna félagi og aukningin á landsvísu er orðin gríðarlega stór. Ég held að golfíþróttin sé orðin næst fjölmennasta íþróttin á landinu og miðað við þróunina þá fer hún fram úr fótboltanum áður en langt um líður. Ég var með 100 manna hóp hérna fyrir hádegi og núna er 70 manna innbyrðis mót á vegum Icepharma sem er með völlinn á leigu og það er ræst út á öllum teigum hjá okkur. Það er passlegur hópur fyrir þennan völl en við erum oft með 90 manna hópa,“ bætir Bjarki við – og heldur áfram: „Þetta er um 240 fermetrar, límtréshús frá Límtré Vírneti, en fyrirtækið ásamt Borgarverki og Steypustöðinni hafa stutt gífurlega vel við okkur í þessari uppbyggingu. Við skiptum húsinu nokkurn veginn til helminga fyrir starfsemina. Við erum með móttöku og viðverusal hérna, en fyrir aftan erum við með um 110 til 120 fermetra þar sem við ætlum að koma upp tveimur golfhermum með grasi á fyrri púttvöll. Við stefnum á það að opna þann hluta fyrir byrjun september mánaðar og vera klár fyrir haustið og veturinn. Uppi á milliloftinu hér fyrir ofan ætlum við að koma fyrir skrifstofum og aðstöðu fyrir starfsmenn, því eins og aðstaðan er í dag þá er ég nánast heimavinnandi. Ég er í rauninni ekki með skrifstofu sem er nothæf,“ segir Bjarki.

Stuðningur sveitarfélagsins skiptir sköpum

Bjarki heldur áfram: „Það má segja að þessi samningur sem er kominn í gegn með Borgarbyggð sé risastór sigur, en ekki hefur verið langtímasamningur á milli GB og Borgarbyggðar frá árinu 2016. Við vorum búin að reka okkur það vel í tvö ár að við réðum alveg við þessa framkvæmd sjálf. Það er raunverulega umfram allar væntingar að vera kominn með sveitarfélagið svona á okkar band. Draumurinn er að geta komið upp framtíðar klúbbhúsi sem gæti passað betur inn í okkar heildarstarfsemi, en til þess þurfum við sterka aðkomu frá Borgarbyggð. Það verður einnig skemmtilegt að taka samtal með nýjum eigendum Hótel Hamars í haust og sjá hvernig báðir aðilar sjá mögulegt samstarf fyrir sér. Stefnan hjá okkur er að við viljum taka á móti öllum okkar kylfingum. Við viljum selja nesti og golfvörur, viljum vera með golfvörurnar hjá okkur og geta veitt þá þjónustu sem aðrir golfklúbbar, sem við erum að bera okkur saman við, gera. Ef maður hugsar þetta út frá því eins og þetta er, þá myndi það skjóta skökku við að fara út í veitingarekstur á tveimur stöðum hérna hlið við hlið þannig að okkur finnst engu að síður mikilvægt að eiga í góðu samstarfi við hótelið. Það er svo gott fyrir svæðið að geta samnýtt þetta. Það er bara samtal sem á eftir að eiga sér stað. Nú eru komnir nýir eigendur að hótelinu – gerðist bara í vetur – og því mikilvægt að taka samtalið um grundvöll fyrir einhverju samstarfi. Samstarfið við fyrri rekstraraðila varði í átta ár og var mjög farsælt.“


Gagngerar breytingar á vellinum og stækkun

Þið eruð líka að gera breytingar á golfvellinum, er það ekki? 

„Jú, svæðið hefur stækkað mjög mikið á undanförnum árum og umsvifin aukist. Við erum að gera breytingar á golfvellinum, erum að hluta til með svona tvískiptingu á gömlu 17. holunni en ætlunin er að koma okkur upp nítján holu velli með það í huga að taka eina og eina holu út til þess að lagfæra. Af því að hérna á Hamri erum við með níu holur sem eru gerðar í kringum stofnun klúbbsins árið 1973 og svo erum við með stækkun golfvallarins sem gerð var núna fyrir einhverjum 20 árum. Það eru líka holur innan veghelgunarsvæðis Vegagerðarinnar. Við viljum í rauninni vera undirbúin og erum að tvískipta framkvæmdunum og stefnum að því að taka eina og eina holu í senn. Síðan erum við að efnisfylla stórt svæði sem snýr að Hafnarfjallinu en það er meiri undirbúningsfasi, ef og þegar það verða einhverjar breytingar út frá þessu veghelgunarsvæði við þjóðveginn eins og ég nefndi. Þetta er stórt svæði og í þeim stóra og mikla samningi sem við erum með við Borgarverk þá mun þetta taka einhvern tíma, jafnvel nokkur ár, að fylla upp þetta svæði, en við erum ekkert að flýta okkur.“

Boltar hafa lent í bílum á veginum

Hafa golfboltarnir verið að fljúga yfir veginn og lenda á bílum á þjóðveginum, farið í gegnum bílrúður, spyr blaðamaður. 

„Það eru ekki margar bílrúður farnar á þjóðvegi eitt, en við höfum þó alveg heyrt – og með vitni að því að boltar hafi farið í bíla, sem er náttúrulega alveg stórhættulegt. Síðan erum við með hótel sem var byggt á sínum tíma og þar erum við með bílastæði og annað, þar sem við erum að fá bolta inn um rúður á hverju ári. Það er alltaf fúlt en þetta fylgir sportinu. Þegar þú ert að spila golf þá getur þú alveg átt von á því að slá í bíl eða hús á þessum golfsvæðum, sérstaklega úti við húsin, ef þú tekur skakkan bolta þá kemur þetta alveg fyrir. Þegar það er byggt innan golfsvæðanna þá er þessi hætta fyrir hendi.“

Ætla að styðja við barna- og unglingastarf

„Við hugsum þetta þannig að við viljum ná sveitarfélaginu í lið með okkur. Síðasta sveitarstjórn sem var að skila af sér í umliðnum sveitarstjórnarkosningum gerði mjög vel við okkur. Þannig að okkar verkefni er svolítið að heyra í nýrri stjórn og reyna að vekja athygli þeirra á mikilvægi starfseminnar hér, því að til margra ára og jafnvel hátt í áratug hefur klúbburinn verið skilinn örlítið út undan, samanborið við önnur sveitarfélög. Þar erum við að horfa til Akraness, Húsavíkur og annarra sveitarfélaga sem eru að styrkja og styðja mjög duglega við golfklúbbana sína, jafnvel í formi árlegra rekstrarstyrkja og með húsnæði líka. Eins og með Húsavík þá lagði sveitarfélagið 90 til 100 milljónir í nýtt klúbbhús og ég veit fyrir víst að á Akranesi tók sveitarfélagið stóran þátt í nýrri byggingu hjá Golfklúbbnum Leyni, sem er bara frábært og þvílík lyftistöng fyrir starfsemina. Og mér finnst að við þurfum að vakna gagnvart þessu, af því að bara það að fá þessa lyftistöng, húsnæði sem passar algjörlega fyrir okkar starfsemi, en ekki bara húsnæði sem við ráðum við. Þetta húsnæði er eitthvað sem við ráðum við og okkur þykir gríðarlega vænt um það og það á eftir að sinna sínu hlutverki fyrir félagsandann og starfsemina. Við verðum með tvo golfherma í enda hússins sem búið er að stúka af og það gerum við líka til þess að geta styrkt líka barna- og unglingastarf og aukið þjónustu við samfélagið,“ segir Bjarki.

Sjálfbærni og samvinna

Þessi skemma hlýtur að vera kærkomin viðbót? Hérna eruð þið komin með vísi að þjónustuborði þar sem viðskiptavinir geta keypt veitingar og sest niður, fyrir eða eftir einn hring á vellinum?

„Já, það má segja að við séum komin með okkar nestissjoppu og móttöku myndi ég segja. Við erum náttúrulega komin með 120 til 130 fermetra pall hérna fyrir utan þannig að á góðum dögum er hægt að sitja hérna og horfa á fólk klára hringinn sinn. Það var alveg ótrúlega flott á Hótel Hamri þegar við vorum þar. Það var þessi upplifun að horfa á fólk koma inn, setjast niður og gefa sér tíma til að slaka á og njóta. Við stefnum á að eiga áfram gott samstarf við Hótel Hamar svo það sé sagt. Þó svo að við slítum okkur aðeins frá núna með því að færa okkur yfir í eigin móttöku, þá getum við tekið við okkar kúnnum sjálf, sem er bara orðið nauðsynlegt af því að golfvöllurinn hefur stækkað gífurlega á síðustu árum, sem og hótelið líka. Ferðamennska hefur aukist mikið þannig að það var alveg kominn tími á það að finna einhverja lausn til að geta tekið vel á móti okkar viðskiptavinum í sameiningu á þessi svæði. Völlurinn er í frábæru standi og megi fólk vera hjartanlega velkomið. Við tökum á móti öllum með bros á vör,“ segir Bjarki að lokum.

óhk.


Kristján Páll Hjaltason starfsmaður vallarins að erindast á golfbíl. Gamli Hamarsbærinn í baksýn.


Golfarar á leið á völlinn.


Móttökusalurinn í nýju aðstöðunni.


Kristján Páll Hjaltason móttökustjóri númer tvö við móttökuborðið.


Fjölmiðlamenn fá aldrei frí frá fjölmiðlum. Gummi Ben, sparkspekingur og íþróttalýsandi af guðs náð, Kjartan Henry Finnbogason, sparkspekingur og fyrrum landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, og Sóli Hólm, landsþekkt eftirherma, uppistandari og leikari með meiru, stilltu sér upp fyrir blaðamann.