Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Formannshjónin best á KEF mótinu í Leiru
Sveinn og Svandís með Sverri Auðunssyni framkvæmdastjóra GS og Erni Ævari Hjartarsyni stjórnarmanni GS.
Laugardagur 13. júní 2026 kl. 09:08

Formannshjónin best á KEF mótinu í Leiru

Formannshjónin í Golfklúbbi Suðurnesja sigruðu í KEF-hjóna og paramótinu sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru 6. júní. Alls mættu 84 keppendur til leiks í uppseldu móti sem haldið var í samstarfi við Hótel Keflavík og Diamond Suites.

Helgin hófst með fordrykk í KEF SPA þar sem þátttakendur fengu jafnframt að kynnast Vatnsneshúsinu, einu merkasta söguhúsi Reykjanesbæjar, áður en haldið var út á Hólmsvöll til leiks. Að leik loknum tók við glæsilegt borðhald þar sem verðlaun voru afhent.

„Það er eitthvað sérstakt við KEF Hjóna- og paramótið. Við hjá Golfklúbbi Suðurnesja erum stolt af því að sjá hvernig mótið hefur þróast á fáum árum. Það sem byrjaði sem skemmtileg hugmynd hefur orðið að viðburði sem margir setja hring utan um í dagatalinu sínu áður en sumarið gengur í garð.

Við viljum færa Hótel Keflavík, Diamond Suites, KEF SPA og KEF Restaurant okkar bestu þakkir fyrir samstarfið og þá metnaðarfullu umgjörð sem þau skapa í kringum mótið. Einnig viljum við þakka öllum keppendum fyrir jákvæðnina, góða andann og gleðina sem fylgdi deginum,“ segir í frétt frá GS um mótið.

Formannshjónin Svandís og Sveinn voru jöfn Eddu Guðrúnu og Jóni Jóhannssyni en voru með betri árangur á seinni níu holunum. Svo var parið í 3. sæti aðeins höggi á eftir þessum tveimur. Hörku spenna á Hólmsvelli.

Úrslit:

1. sæti – 45 punktar

Svandís Þorsteinsdóttir og Sveinn Björnsson

2. sæti – 45 punktar

Edda Guðrún Pálsdóttir og Jón Jóhannsson

3. sæti – 44 punktar

Þórey Friðrikka Guðmundsdóttir og Þorkell Þór Gunnarsson

17. sæti – 40 punktar

Þóranna Andrésdóttir og Halldór Reinhardtsson

40. sæti – 29 punktar

Jónas Halldór Haralz og Gyða Haralz Jakobsdóttir

Nándarverðlaun hlutu:

• Baldur Þórir Júlíusson

• Elínborg Sigurðardóttir

• Jón Jóhannsson

• Sólveig Björgvinsdóttir