Fréttir

Haraldur Franklín hefur leik á fimmtudaginn
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 28. apríl 2021 kl. 22:50

Haraldur Franklín hefur leik á fimmtudaginn

GR-ingurinn Haraldur Franklín Magnús er á meðal keppenda á Bain's Wisky Cape Town Open mótinu sem hefst á fimmtudaginn á Áskorendamótaröð karla í golfi.

Um er að ræða annað mót tímabilsins en það fyrsta fór einnig fram í Suður-Afríku og spilaði Haraldur í því móti. Þar komst hann ekki í gegnum niðurskurðinn.

Haraldur hefur leik klukkan 9:20 að staðartíma á fimmtudaginn eða klukkan 7:20 að íslenskum tíma. Hann spilar með þeim John Allen og Thabang Simon fyrstu tvo hringina en sá síðarnefndi er heimamaður.

Hér verður hægt að fylgjast með skori keppenda í beinni.

Eftir tvo hringi verður skorið niður og komast þá um 70 efstu kylfingarnir áfram. Alls verða leiknir fjórir hringir í mótinu.