Fréttir

Háskólagolfið: Heiðrún og félagar í öðru sæti
Heiðrún Anna Hlynsdóttir. Mynd: [email protected]
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 15. október 2019 kl. 20:06

Háskólagolfið: Heiðrún og félagar í öðru sæti

Heiðrún Anna Hlynsdóttir og lið hennar Costal Carolina kepptu á Palmetto Intercollegiate mótinu í bandaríska háskólagolfinu dagana 13.-15. október. Mótið var haldið á Kiawah Island vellinum í Suður-Karólínu.

Heiðrún lék flott golf í mótinu og þá sérstaklega á lokahringnum þar sem hún kom inn á höggi undir pari og fór upp um 19 sæti. Samtals lék hún á 7 höggum yfir pari og varð í 49. sæti í einstaklingskeppninni.

Liði Heiðrúnar gekk vel í mótinu og endaði í 2. sæti á höggi yfir pari í heildina, höggi á eftir College of Charleston sem fagnaði sigri.

Nú tekur við töluverð bið fyrir næsta móti hjá Heiðrúnu en það fer fram eftir áramót, dagana 17.-18. febrúar.

Hér er hægt að sjá lokastöðuna í mótinu.


Lið Coastal Carolina sem endaði í öðru sæti.