Fréttir

Háskólagolfið: Saga jöfn í efsta sæti
Saga Traustadóttir.
Laugardagur 6. október 2018 kl. 09:49

Háskólagolfið: Saga jöfn í efsta sæti

Afrekskylfingurinn Saga Traustadóttir er í efsta sæti eftir fyrsta hringinn á Ron Moore Women's Intercollegiate mótinu sem er hluti af bandaríska háskólagolfinu. Mótið fer fram í Denver dagana 5.-7. október.

Saga lék fyrsta hringinn á 2 höggum undir pari þrátt fyrir að vera komin þrjá yfir eftir fimm holur. Eftir slæman kafla á fyrstu holunum lék hún óaðfinnanlegt golf næstu 13 holur þar sem hún fékk 5 fugla og 8 pör.

Lið Sögu, Colorado State, er í efsta sæti í mótinu á 2 höggum undir pari, fimm höggum á undan Kansas skólanum.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.

Ísak Jasonarson
[email protected]