Fréttir

Hataoka sigraði í Arkansas
Hataoka vann eftir spennandi keppni um helgina.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
mánudaginn 27. september 2021 kl. 11:48

Hataoka sigraði í Arkansas

Nasa Hataoka frá Japan sigraði á Walmart Arkansas Championship á LPGA mótaröðinni um helgina.

Hatoka lék hringina þrjá á samtals 16 höggum undir pari, einu höggi betur en Eun Hee Ji og Mimjee Lee.

Hataoka sem situr í 11. sæti heimslistans vann þar með sinn fimmta sigur á LPGA mótaröðinni á ferlinum.

Lokastaðan í mótinu