Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Haukur Óskarsson er kylfingur vikunnar
Miðvikudagur 9. febrúar 2011 kl. 17:25

Haukur Óskarsson er kylfingur vikunnar

Kylfingur vikunnar á Kylfingi.is þessa vikuna er Haukur Óskarsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Ness - Nesklúbbsins. Hann er 38 ára gamall og er menntaður viðskiptafræðingur. Hann er giftur Huldu Bjarnadóttur og eiga þau saman tvö börn. Haukur er ekki bara góður í að stjórna golfklúbbi heldur er hann einnig flinkur kylfingur og er með fjóra í forgjöf. Kylfingur.is fékk Hauk til að svara nokkrum spurningum um golfið og golfferilinn.

Örninn 2025
Örninn 2025

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
Ég byrjaði 13 ára. Annað heimili pabba var Nesvöllurinn og ég fékk að flækjast með á einhverjum tímapunkti og þá var ekki aftur snúið.

Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
Ég var í þessum klassísku íþróttum, fótbolta og svo handbolta þar sem ég æfði mark. Þótti nú frekar slakur á báðum sviðum og það kom fáum á óvart þegar að ég lagði skóna snemma á hilluna, töluvert fyrr en upphaflega ætlað var.

Helstu afrek í golfinu?
Það fer nú lítið fyrir afrekunum þessi síðustu ár. Maður lifir þó á gömlum “afrekum” og ætli ég sé ekki einna stoltastur af landsliðsferðum mínum með unglingalandsliðinu og klúbbmeistartitli Nesklúbbsins 2002. Hola í höggi á áttundu holunni úti á Nesi sem er par fjögur hola var líka ákveðið afrek þó að einhverjir spekingar vilji nú meina að það sé heppni.

Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
Sem heimamaður að detta út á fyrstu holu í Einvíginu á Nesinu 2002 (Shoot-out) þrátt fyrir miklar yfirlýsingar fyrir mót. Þetta var ansi vandræðalegt enda fjöldi áhorfenda og svo var þessu sjónvarpað í þokkabót.

Ferðu í golfferð til útlanda á næstunni og ef þá hvert?
Ég fór í ógleymanlega golfferð til Villaitana á Spáni síðasta haust. Næst verður það þó Flórída, hvort sem að það verði í ár eða síðar.

Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
Ég held að einn af mínum styrkleikum sé að ég skeyti sjaldan skapi þrátt fyrir misheppnuð högg. Hvað veikleikana varðar að þá er ég oft kominn aðeins fram úr mér þegar að vel gengur og er búinn að ákveða hvaða skor ég fæ á næstu holur til að enda hringinn vel. Það kann aldrei á gott enda högg fyrir högg taktíkin ávallt best.

Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju?

Birgir Leifur og Ólafur Björn Loftsson. Báðir frábærir kylfingar þó ólíkir séu og miklir öðlingsdrengir bæði innan vallar sem utan og góðar fyrirmyndir. Ég hef nú alltaf verið Tiger maður. Hann er einfaldlega með allan pakkan og gríðarlegt keppnisskap. Ég hef fulla trú á að sól hans muni rísa aftur fljótlega eftir “smá” fall undanfarið.

Atvinnumaður í fótbolta eða golfi?
Golfi, það þarf ekkert að hugsa það.

Hvert er eftirlætisliðið í enska boltanum og hvers vegna?
Ég er stoltur af því að halda með Liverpool. Þegar að ég var krakki spurði afi minn heitinn með hvaða liði ég héldi og ég þekkti ekkert annað lið en Liverpool. Hann gaf mér í framhaldinu bolla sem á voru prentaðir allir titlar Liverpool fram til þess tíma. Ég held að bollinn væri góður og gildur ennþá í dag enda fáir titlar bæst við síðan þá.

Hefur þú farið holu í höggi eða verið nálægt því?
Tvisvar sinnum, fyrst á áttundu holu á Nesvellinum 1990 og svo fjórðu holu á Hvaleyrinni 2005.

Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?

Ingvar Þór Ólason (knattspyrnumaður í Þrótti Reykjavík fyrir þá fáu sem ekki vita).

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Er ekki þessi Þorsteinn Hallgrímsson rosalega frægur

Hvað keppnisfyrirkomulag er skemmtilegast í golfi og hvers vegna?
Höggleikur, sýnir fremur en nokkuð annað fyrirkomulag raunverulega getu kylfinga.

Ertu hjátrúarfullur hvað varðar golf?
Já, ég held að ég geti nú ekki neitað því. Nota til dæmis aldrei annað en hvít tí og hef farið í gegnum fyrstu þrjá mótsdaga af fjórum í sama bolnum af því það gekk svo vel fyrstu tvo dagana.

Hver er besti kylfingur landsins og hver er efnilegastur að þínu mati?
Birgir Leifur er að mínu viti besti kylfingur landsins í dag þó svo að nokkrir séu nú ekki ýkja langt á eftir. Ég á erfitt með að gera upp á millli allra þessara ungu og efnilegu kylfinga. Til þess að nefna einhverja myndi ég segja Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Rúnar Arnórsson hjá körlunum og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir hjá konunum. Svo er fjöldinn allur af ungum kylfingum sem munu án efa láta til sín taka á næstu árum.

Hvað finnst þér skemmtilegast og leiðinlegast við golf?
Skemmtilegast finnst mér þessi eilífa keppni við sjálfan sig sem golfið er svo ég tali nú ekki um félagsskapinn. Mér leiðist nú yfirleitt bið í vondu veðri en það er nú bara partur af þessu.

Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli?
Ég var á sínum tíma að keppa á Evrópumóti skólaliða fyrir hönd Verzlunarskólans sem haldið var rétt fyrir utan London á Englandi. Á fyrstu holunum fékk ég par, fugl, örn og fugl og því fjóra undir pari eftir fjórar holur. Þá kom starfsmaður mótsins til þess að spyrjast fyrir um skor hjá okkur og fannst mikið til koma af þessari byrjun hjá mér. Ég stressaðist allur upp yfir athyglinni og fékk á næstu holum þrefalldan skolla, þrjá tvöfallda skolla og grísaði svo á par á níundu. Maður var ekki alveg að höndla pressuna þarna og endaði fyrri níu fimm yfir pari og hringinn á 79 höggum þrátt fyrir góða byrjun. Ég vakti ekki meiri athygli eftir það á mótinu.

Fylgist þú mikið með golfi?
Já, já. Ég horfi á allt það golf sem boðið er upp á í sjónvarpi, bæði erlent og innlent og les um það á netinu.

Staðreyndir:
Nafn: Haukur Óskarsson
Klúbbur: Nesklúbburinn
Forgjöf: 4
Golfpokinn: Ping G10 Driver, 3 tré og 18° hybrid. Ping i10 fjögur járn - PW, Ping Tour-W, 52°, 56° og 60° fleygjárn og Ping Anser 4 pútter.
Golfskór: Ecco
Golfhanski: Footjoy
Fyrirmynd: Ég reyni að tileinka mér kosti margra
Masters eða Opna breska? Masterinn
St. Andrews eða Pebble Beach? Pebble Beaceh
Uppáhalds matur: Rjúpur
Uppáhalds drykkur: Íslenska vatnið
Uppáhalds golfhola: Áttunda holan á Nesinu
Ég hlusta á: Konuna á góðum degi
Besti völlurinn: Nesvöllurinn að sjálfsögðu en af 18 holu völlunum myndi ég segja Hvaleyrin.
Besta skor (hvar): 68 högg á Nesinu
Besta vefsíðan: nkgolf.is
Besta blaðið: Öll blöð sem innihalda umfjöllun um golf
Besta bókin: Geri ekki upp á milli bóka Arnaldar Indriðasonar
Besta bíómyndin: Ég get horft á James Bond myndirnar aftur og aftur
Besti kylfingurinn: Rúnar Geir Gunnarsson þegar hann nær að hemja skapið