Mánudagur 9. febrúar 2009 kl. 11:38
Heiða Guðnadóttir á förum frá GS

Tvöfaldur klúbbmeistari GS og fyrrverandi stúlknameistari, Heiða Guðnadóttir, hefur gefið það út að hún muni ekki spila fyrir GS á þessu ári heldur mun hún ganga í lið við GKJ. Þetta mun vera mikið reiðarslag fyrir sveit GS sem sigraði í 2. deildinni í fyrra og unnu sér þátttökurétt í efstu deildinni. Heiða hefur verið að vinna í sveiflunni með íþróttastjóra GKJ, Inga Rúnari Gíslasyni, og sagði hún að stór þáttur í ákörðun sinni hafi verið að hún treysti honum mjög vel og að hún fengi ekki nógu mikla keppni í sínum gamla klúbbi. Og til að verða enn betri þyrfti hún að taka þetta skref þar sem fyrrverandi Íslandsmeistari, núverandi stigameistari og fyrirmyndin hennar, Nína Björk Geirsdóttir, væri við æfingar og gæti hún lært mjög mikið af henni.
Hún tók þessa ákvörðun núna í byrjun febrúar en hún er nú stödd á Spáni þar sem hún er að vinna og æfa golf. Heiða er stödd á Valle del Este vellinum ásamt kærasta sínum, Davíð Gunnlaugssyni meistaraflokksmanni úr GKJ. Þar eru þau að vinna á vellinum fyrri part dags og spila svo golf seinni partinn.
„Þetta er mjög leiðinlegt að hún skuli velja þessa leið því hún er fyrirmynd allra ungu stúlknanna í klúbbnum og hafði ég hugsað henni stórt hlutverk í uppbyggingu unglingastarfsins hjá klúbbnum," sagði Örn Ævar Hjartarson nýráðinn golfkennari Golfklúbbs Suðurnesja.
Heiða er í fjarnámi frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla og stefnir hún á að ljúka stúdentsprófi vorið 2010.