Heiðrún og Jóhannes Hvaleyrarmeistarar
Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr Golfklúbbi Selfoss og GR-ingurinn Jóhannes Guðmundsson sigruðu í Hvaleyrarbikarnum í golfi sem lauk á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í dag. Mótið er eitt stigamótanna á mótaröð GSÍ.
Heiðrún Anna sigraði í fyrsta skipti á mótinu og lauk leik á þremur höggum yfir pari samtals. Lék hún hringina þrjá á 72, 74 og 70 höggum. Þegar uppi var staðið var sigurinn afgerandi en Elsa Maren Steinarsdóttir úr GR var fimm höggum á eftir. Fyrir lokahringinn munaði tveimur höggum á þeim í efstu tveimur sætunum en Heiðrún og Elsa höfðu þá slitið sig frá hópnum. Bronsverðlaunin hlaut Eva Kristinsdóttir en hún var fimmtán höggum á eftir Heiðrúnu.
Jóhannes sigraði einnig í fyrsta skipti á mótinu en Hvaleyrarbikarinn er einn elsti verðlaunagripurinn sem keppt er um í golfíþróttinni á Íslandi. Spennan var mikill því Jóhannesi og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR voru jafnir eftir 54 holur og þurfti því bráðabana til að skera úr um úrslit. Þar hafði Jóhannes betur.
Hann lék á 72, 68 og 73 höggum en Guðmundur Ágúst elti hann uppi á lokahringnum í dag með því að leika á 69 höggum. Hina hringina lék Guðmund á 71 og 73 höggum. Sigurður Bjarki Blumenstein einnig úr GR var lengst af í baráttunni fór illa úr hinum erfiðu 16. holu og lauk leik í dag á 76 höggum. Veigar Heiðarsson úr Golfklúbbi Akureyrar náði bronsinu en hann lék á 73, 70 og 71 höggum.