Fréttir

Heimslisti kvenna: Suzuki aldrei ofar
Ai Suzuki.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
mánudaginn 11. nóvember 2019 kl. 19:00

Heimslisti kvenna: Suzuki aldrei ofar

Heimslisti kvenna hefur nú verið uppfærður eftir mót helgarinnar. Jin-Young Ko er sem fyrr í efsta sætinu og hefur hún nú verið þar samfleytt í 16 vikur í efsta sætinu og samtals í 28 vikur á sínum ferli.

Líkt og undan farnar vikur er forysta hennar á toppnum tæplega þrjú stig og því ljóst að hún mun verma efsta sætið næstu vikurnar.

Sigurvegari helgarinnar á Toto Japan Classic mótinu á LPGA mótaröðinni, Ai Suzuki, fer upp um fimm sæti. Hún er nú komin í 19. sæti heimslistans en hún hefur aldrei verið ofar.

Staða 10 efstu kvenna má sjá hér að neðan en hérna má sjá listann í heild sinni.