Hulda eina sem komst í gegnum niðurskurðinn í Portúgal
Hulda Clara Gestsdóttir endaði jöfn í 37. sæti á þriðja síðasta mótinu á LETAS mótaröðinni í Portúgal. Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir komust ekki í gegnum niðurskurðinn.
Hulda lék hringina þrjá á sex yfir pari, 76-72-74. Hún náði engum hring undir pari og hún fékk þrjá tvöfalda skolla sem voru henni dýrir í toppbaráttunni á stigalistanum. Aðstæður voru erfiðar fyrri part mótsins, vindasamt og pinnastaðsetningar þóttu mjög erfiðar.
Andrea Bergsdóttir var höggi frá niðurskurðinu á fimm yfir pari, 73-76.
Ragnhildur Kristinsson var fjórum höggum frá niðurskurðinum á átta yfir pari, 74-78.
Þegar þetta er skrifað hefur stigalistinn ekki verið uppfærður en sjö efstu kylfingarnir vinna sér þátttökurétt á LET mótaröðinni, þeirri efstu í Evrópu. Með mjög góðri frammistöðu í síðustu tveimur mótunum eiga allar íslensku stelpurnar möguleika á að enda í efstu sjö sætunum. Þrjátíu efstu á stigalistanum sleppa við fyrra stig úrtökumótanna og ættu allar íslensku stelpurnar að vera öruggar þar.

Andrea Bergsdóttir á mótinu í Portúgal.
Ragnhildur í baráttuni í Portúgal.



